Safnahelgin í Vestmannaeyjum verður haldin dagana 29. október til 1. nóvember með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla aldurshópa. Meðal viðburða eru tónleikar í sundlauginni, bókakynningar, myndlistarsýningar, hrekkjavökufjör og ljósmyndasýningar. Sérstök athygli verður vakin á því að á næsta ári verða 400 ár liðin frá Tyrkjaráninu.
Safnahelgin hefur um árabil verið fastur liður í menningarlífi Vestmannaeyja og notið vinsælda. Söfnin og menningarfólk í Eyjum sameinast um dagskrá sem gefur Eyjamönnum og gestum tækifæri til að kynnast sögu, listum og menningararfi Eyjanna á lifandi og skemmtilegan hátt.
Kl. 13:30 – Safnahús: Ljósmyndadagur
Þekkirðu leikarana? Sýndar verða elstu varðveittu myndir ljósmyndasafnsins úr blómlegu starfi Leikfélags Vestmannaeyja.
Kl. 18:00 – Stafkirkja: Setning Safnahelgarinnar
Sr. Guðmundur Örn Jónsson og Kristín Jóhannsdóttir sjá um setningu Safnahelgarinnar.
Á næsta ári verða 400 ár liðin frá Tyrkjaráninu. Af því tilefni verður efnt til fjölbreyttrar dagskrár á minningarárinu 2027. Sigurhanna Friðþórsdóttir kynnir fyrirhugaða viðburði fyrir hönd Söguseturs 1627 og Vestmannaeyjabæjar.
Elva Ósk segir frá einleik sínum um Tyrkjaránið sem verður frumfluttur á næsta ári. Hafsteinn Þórólfsson gefur tóninn fyrir föstudagstónleikana.
Kl. 20:00 – Sundlaug Vestmannaeyja: Hvalasöngur í kafi og sundmenning Vestmannaeyja
Dagskráin sameinar tónlist, náttúru- og söguupplifun og virka þátttöku gesta í Sundlaug Vestmannaeyja. Tónlistarfólk úr Eyjum kemur fram og kvikmyndum og ljósmyndum úr sögu sunds og sundkennslu í Vestmannaeyjum verður varpað á veggi sundlaugarinnar.
Kl. 17:30 – Eldheimar: Steinunn Sigurðardóttir
Steinunn, ein ástsælasta og skemmtilegasta skáldkona landsins, les úr nýrri bók sinni, Veisla þrjú, og spjallar við gesti.
Kl. 20:30 – Eldheimar: Tónleikar
Stórsöngvarinn Hafsteinn Þórólfsson syngur valdar Eyjaperlur og annað fallegt. Um undirleik sjá Einar Scheving, Magnús R. Einarsson og Þórir Ólafsson.
Öll velkomin meðan húsrúm leyfir. Húsið verður opnað kl. 20:00.
Kl. 12:00–15:00 – Bókasafn: Hrekkjavökufjör
Safnið tekur á sig hræðilega ásýnd í tilefni hrekkjavökunnar. Villist þú í völundarhúsinu?
Kl. 13:00 – Bókasafn: Sögustund í myrkri
Boðið verður upp á upplestur í myrkri þar sem sögurnar fá að njóta sín í dularfullri stemningu. Þau sem eiga vasaljós mega gjarnan koma með þau.
Kl. 14:00 – Sagnheimar: Bókakynning
Það verður sannkölluð bókmenntaveisla þegar fjórir þekktir rithöfundar koma í heimsókn, kynna nýjustu verk sín og lesa úr bókum sínum:
Kl. 18:00–20:00 – Bókasafn: Grikk eða gott
Í tilefni hrekkjavökunnar verður kvöldopnun á bókasafninu og boðið upp á grikk eða gott. Safnið verður skreytt í anda hrekkjavökunnar og tilvalið að koma og skoða herlegheitin.
Kl. 13:00 – Sagnheimar: Konunglegur fyrirlestur
Guðný Ósk Laxdal fjallar um norsku konungsfjölskylduna sem hefur verið mikið í sviðsljósinu undanfarið. Þar kemur við sögu óþekkti Íslendingurinn sem hulunni verður svipt af!
Hvíta húsið við Strandveg
Lista- og menningarfélagið verður með opið hús og opnar vinnustofur frá föstudegi til sunnudags kl. 13:00–16:00.
Eldheimar
Opið frá fimmtudegi til sunnudags kl. 13:00–16:00.
Bókasafnið
Opið fimmtudag og föstudag kl. 10:00–17:00 og laugardag kl. 12:00–15:00. Á laugardagskvöldinu verður einnig opið kl. 18:00–20:00 vegna hrekkjavökunnar. Öll velkomin í grikk eða gott.
Fágætissalur Safnahúss
Opið fimmtudag og föstudag kl. 13:00–17:00 og laugardag kl. 12:00–15:00.
Verið velkomin á varanlega sýningu á málverkum Jóhannesar S. Kjarvals og Júlíönu Sveinsdóttur. Margar af fágætustu bókum landsins eru einnig til sýnis á þessum einstaka stað.
Sagnheimar
Opið frá fimmtudegi til laugardags kl. 12:00–15:00. Í sýningarsal verða sýnd valin málverk úr safnkosti Listasafns Vestmannaeyja.
Íþróttamiðstöð
Opið fimmtudag og föstudag kl. 06:30–21:00 og laugardag og sunnudag kl. 09:00–18:00.
Í anddyrinu verður brugðið upp svipmyndum úr sögu sundlaugarinnar og íþróttamannvirkja í Vestmannaeyjum. Þar gefur að líta gamlar ljósmyndir og kvikmyndabrot úr safnkosti Safnahússins sem rifja upp liðna tíð.