Safnahelgin í Vestmannaeyjum verður formlega sett í Stafkirkjunni í dag, fimmtudag, klukkan 18.00. Sr. Guðmundur Örn Jónsson og Kristín Jóhannsdóttir sjá um setninguna en þar verður jafnframt horft til næsta árs þegar 400 ár verða liðin frá Tyrkjaráninu 1627.
Af því tilefni verður efnt til fjölbreyttrar dagskrár í Vestmannaeyjum á minningarárinu 2027. Sigurhanna Friðþórsdóttir kynnir fyrirhugaða viðburði fyrir hönd Söguseturs 1627 og Vestmannaeyjabæjar.
Leikkonan Elva Ósk segir frá nýjum einleik sínum um Tyrkjaránið sem verður frumfluttur á næsta ári. Að lokum gefur söngvarinn Hafsteinn Þórólfsson tóninn fyrir tónleika sína í Eldheimum annað kvöld, föstudag.
Safnahelgin stendur fram á sunnudag og býður upp á fjölbreytta menningarviðburði fyrir alla aldurshópa.
Kl. 13:30 – Safnahús: Ljósmyndadagur
Þekkirðu leikarana? Sýndar verða elstu varðveittu myndir ljósmyndasafnsins úr blómlegu starfi Leikfélags Vestmannaeyja.
Kl. 18:00 – Stafkirkjan: Setning Safnahelgarinnar
Sr. Guðmundur Örn Jónsson og Kristín Jóhannsdóttir sjá um setninguna. Minningarár Tyrkjaránsins 2027 verður kynnt, Elva Ósk segir frá væntanlegum einleik sínum og Hafsteinn Þórólfsson gefur tóninn fyrir föstudagstónleikana.
Kl. 20:00 – Sundlaug Vestmannaeyja: Hvalasöngur í kafi og sundmenning Vestmannaeyja
Tónlist, náttúru- og söguupplifun og virk þátttaka gesta verða í fyrirrúmi. Tónlistarfólk úr Eyjum kemur fram og kvikmyndum og ljósmyndum úr sögu sunds og sundkennslu í Vestmannaeyjum verður varpað á veggi sundlaugarinnar.