Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Biggi Nielsen leiðir tónlistarflutninginn :: Hvalahljóð úr rannsóknum Háskóla Íslands :: S!ll!,  frumflytur nýtt lag um Gamla Jón
Tónleikar í sundhöllinni á Safnahelgi á síðasta ári. Dulmagnað umhverfi og tónlist. Mynd: Eyjafréttir/ÓPF
Omar Betri
Ómar
Garðarsson

Fab Lab í Vestmannaeyjum, Biggi Nielsen og  Vestmannaeyjabær standa fyrir sérstökum tónleikum í sundlauginni í kvöld í tilefni af Safnahelgi. Þar verða hvalahljóð úr rannsóknum Háskóla Íslands við Eyjar fléttuð saman við lifandi tónlist og myndir úr náttúru og sögu Vestmannaeyja. Biggi Nielsen leiðir tónlistarflutninginn og meðal þátttakenda er S!ll!, sem hefur vakið athygli sem efnilegur tónlistarmaður. Hann mun flytja gamla Eyjalagið Gamla Jón í nýjum búningi.

„Við höfum fengið hvalahljóð frá Háskóla Íslands og munum sýna myndir úr rannsóknum Háskólans á hvölum við Eyjar,“ segir Frosti Gíslason, forstöðumaður Fab Lab.

Hvalahljóð undir vatnsyfirborðinu

„Við vorum með að sumu leyti svipaðan viðburð í fyrra. Þá spiluðum við hvalahljóðin undir vatnsyfirborðinu á meðan hljóðfæraleikarar léku á laugarbakkanum. Myndum úr hvalarannsóknunum og sögu sundlaugarinnar var varpað á veggi. Þetta skapaði sérstaka stemningu sem okkur langar að byggja á.“  Þetta árið munum við jafnframt sýna myndir frá sögu sundmenningarinnar í Eyjum og gefum ungu tónlistarfólki meira vægi.

Frosti segir mikilvægt að gefa ungu tónlistarfólki tækifæri til að koma sér á framfæri. „S!ll! er einn þeirra sem taka þátt. Hann mun koma með nýtt lag til heiðurs gamla Eyjalagsins  um Gamla Jón og færa það í nýjan búning.“

Þessu tengt: „Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“

Sundlaugamenningin á skrá UNESCO

Hugmyndin að tónleikunum tengist því að íslensk sundlaugamenning var tekin á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf. „Við fengum styrki í tengslum við það frá MNH, Þjóðminjasafninu, Vestmannaeyjabæ, Ísfélaginu, Vinnslustöðinni, Eyjablikk, Teiknistofu PZ og Landsbankanum  og ákváðum að nýta tækifærið til að halda tónleika í sundlauginni,“ segir Frosti.

Fyrr á árinu  var jafnframt minnst 50 ára afmælis sundlaugarinnar með ljósmyndum úr sögu hennar. „Okkur finnst gaman að prófa eitthvað nýtt og nýta þá möguleika sem umhverfið býður upp á. Um leið vekjum við athygli á náttúru og menningu Vestmannaeyja og styðjum við að koma ungu tónlistarfólki á framfæri,“ segir Frosti Gíslason.

Nánari upplýsingar má finna hér.   Hér má sjá dagskrá Safnahelgar.

 

Play Video

Nýjustu fréttir

Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.