Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst hjá Taflfélagi Vestmannaeyja í kvöld, mánudaginn 2. nóvember, kl. 20 í taflheimilinu að Heiðarvegi 9a.
Námskeiðið hentar bæði þeim sem vilja læra skák frá grunni og þeim sem vilja rifja upp gamla takta. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg og þátttakendur þurfa ekki að taka neitt með sér. Lágmarksaldur er 13 ár og foreldrar og unglingar geta því mætt saman.
Auðunn Haraldsson kennir á námskeiðinu og verður aðaláherslan á taflmennsku, leikgleði og að kynnast grunnatriðum skákarinnar.
Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum kl. 20–21 til 9. desember. Námskeiðsgjaldið er 19.900 kr.
Skráning og frekari upplýsingar eru á kennsluvefur.vercel.app/namskeid.