Kyrrðarbæn í dag
Landakirkja. Hópur fólks hittist á þriðjudögum kl. 17.00 í Landakirkju og er pláss fyrir fleiri.
Thoranna

Aðsend grein

Þóranna M. Sigurbergsdóttir

Hópur fólks hittist á þriðjudögum kl. 17.00 í Landakirkju og er pláss fyrir fleiri.  Við komum saman rétt fyrir kl. fimm og sá sem leiðir stundina les nokkur uppörvandi orð og svo sitjum við í þögn í 20 mínútur og þegar hugsanir fara af stað höfum við bænaorð að leita til. Þetta er ekki langur tími en gefur mikið.

Kyrrðarbæn hentar fólki á öllum aldri og allir geta iðkað hana óháð kirkjudeild eða menningu. Það getur verið erfitt að byrja, en með aga og endurtekningu verður kyrrðarbænin eitt það mikilvægasta í lífinu. Jesú segir;.. Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið….Jóh 14.6

Með ástundun kyrrðarbænar tel ég að við nálgumst líf í fullri gnægð. Það er margs konar styrkur fyrir líkamann að iðka kyrrðarbæn og með ástundun hennar og ég hef kynnst sjálfri mér betur. Ég hef öðlast innri lækningu og fundið fyrir kærleika á dýpri hátt en áður.

Tilfinningar mínar eru í meira jafnvægi og andleg líðan er betri. Samband mitt við sjálfa mig, Guð og aðra hefur styrkst. Við munum koma saman á hverjum þriðjudegi til 15. desember. Nánari upplýsingar eru hjá Kyrrðarbænarsamtökunum á kyrrdarbaen@kyrrdarbaen.is.

 

Þóranna M. Sigurbergsdóttir

Nýjustu fréttir

Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Glódís Dúna valin í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM
Konunglegt drama í Sagnheimum
Neistinn úr Eyjum skilar árangri í Kópavogi 
Skáknámskeið fyrir byrjendur hefst í kvöld
Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum – myndband
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.