Þrjú íþróttafélög í Eyjum fá rúma milljón úr Hvatasjóði
Frá fimleikasýningu hjá Fimleikafélaginu Rán. Félagið fékk 400.000 krónur úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar fyrir verkefnið Fimleikar til framtíðar. Safnmynd.

Fimleikafélagið Rán, Skotfélag Vestmannaeyja og Sundfélag ÍBV fengu samtals 1.050.000 krónur úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar. Rúmur helmingur fjárins sem kom í hlut Suðurlands í nóvemberúthlutun sjóðsins fór til verkefna í Vestmannaeyjum.

Fimleikafélagið Rán fékk 400.000 krónur fyrir verkefnið Fimleikar til framtíðar. Skotfélag Vestmannaeyja fékk sömu upphæð fyrir kynningarnámskeið í skotfimi fyrir börn og ungmenni. Sundfélag ÍBV fékk 250.000 krónur fyrir verkefnið Öll í sund.

Samkvæmt tilkynningu UMFÍ frá 6. nóvember fengu sjö verkefni á Suðurlandi samtals 2.050.000 krónur. Auk Eyjafélaganna fengu Hestamannafélagið Kópur, Hestamannafélagið Sindri, Ungmennafélagið Ás og Ungmennafélagið Hvöt 250.000 krónur hvert. Verkefni Hvatar nefnist Hraust ungmenni.

Á landsvísu fengu 57 verkefni samtals 26 milljónir króna. Hvatasjóðurinn er á vegum ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi mennta- og barnamálaráðuneytisins og styrkir verkefni sem auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttum.

Nýjustu fréttir

Þrjú íþróttafélög í Eyjum fá rúma milljón úr Hvatasjóði
Spyr hvort Herjólfur III verði varaskip í Eyjum í vetur
Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra enn ókominn
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til vörukynninga
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en verkefnið enn í þróun 
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.