Úrslit Vöruhúsdeildarinnar 2026 fara fram í Höllinni í Vestmannaeyjum laugardaginn 21. nóvember þar sem fjórir keppendur berjast um titilinn.
Húsið opnar klukkan 18:00 og verður veitingasala á vegum Vöruhússins. Einnig verður happy hour á jólabjór frá klukkan 18:00 til 19:00.
Jarl Sigurgeirsson sér um lifandi tónlist yfir kvöldið. Hann spilar fyrir keppni, í hléum milli leikja og tekur nokkur lög að lokinni verðlaunaafhendingu.
Fyrri undanúrslitaleikurinn hefst klukkan 19:30. Að undanúrslitunum loknum fá gestir tækifæri til að taka þátt í pílukeppni. Þrjár pílur kosta 1.000 krónur og hlýtur sá sem nær hæsta skorinu vinning. Þátttakendur geta reynt eins oft og þeir vilja en greiða þarf fyrir hverja tilraun.
Að áhorfendaleiknum loknum fer úrslitaleikurinn fram og í kjölfarið verður meistari Vöruhúsdeildarinnar 2026 krýndur.
Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir í Höllina.