Það hefur færst í vöxt að svör bæjaryfirvalda við einföldum fyrirspurnum séu mun styttri en spurningarnar – án þess að vera að sama skapi skýrari.
Þegar Eyjafréttir spurðu hvort tölur úr opnu bókhaldi Vestmannaeyjabæjar væru réttar var svarið einfaldlega: „Nei.“ Engar leiðréttar tölur fylgdu og engin skýring á því hvað væri rangt.
Þegar spurt var hvort greiðslur til lögfræðiþjónustuveitenda gætu einnig náð til annarrar þjónustu eða útlagðs kostnaðar var svarið öllu ítarlegra:
„Já, nei, já.“
Svo eru það fyrirspurnirnar sem fá enn færri orð. Eyjafréttir sendu bæjaryfirvöldum 29. október spurningar um umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra. Þegar þetta er skrifað hafa engin svör borist, þrátt fyrir að fyrirspurninni hafi verið fylgt eftir.
Stundum er svarið því „já, nei, já“. Stundum virðist svarið einfaldlega vera þögn.
Kannski er þetta nýtt form upplýsingagjafar. Annaðhvort stutt, sparneytið og opið fyrir túlkun – eða ekkert svar yfirleitt.
Eyjafréttir leggja sig fram um að sinna því grundvallarhlutverki fjölmiðla að upplýsa almenning um ráðstöfun fjármuna úr sameiginlegum sjóðum og starfsemi sveitarfélagsins. Það ætti ekki að teljast óþægileg afskiptasemi heldur eðlilegur hluti af lýðræðislegu aðhaldi.
Bæjaryfirvöld ráða því sjálf hvort þau líta á málefnalegar fyrirspurnir sem tækifæri til upplýsingagjafar eða verkefni sem afgreiða megi með sem fæstum orðum – eða engu svari.
Almenningur á hins vegar betra skilið en „já, nei, já“ og þögn. Og nú er hvíslað um það: Ef svörin liggja fyrir, hvers vegna er þá svona erfitt að segja þau?