Fiskur fjórum sinnum í viku á Breka VE
Ingólfur Ingvarsson í eldhúsinu um borð í Breka VE. Kyrrmynd úr myndbandi Halldórs B. Halldórssonar.

Ingólfur Ingvarsson hefur verið kokkur á Breka VE frá því að skipið var sótt til Kína. Í myndbandsviðtali á vef Vinnslustöðvarinnar segir hann Halldóri B. Halldórssyni frá eldamennskunni um borð og rifjar upp sósu sem var svo þykk að skipsfélagarnir gátu sett diskinn á hlið án þess að hún rynni af.

Fyrir veiðiferð fer Ingólfur fyrst yfir kostinn og sér til þess að allt sé með. Fiskur er á borðum fjórum sinnum í viku en þegar hann er spurður hvað sé vinsælast nefnir hann lambafille og nautalundir. Þegar einhver í áhöfninni á afmæli er gert aðeins meira úr máltíðinni og stundum er afmælissöngurinn sunginn.

Ef Ingólfur ætti að velja einhvern úr áhöfninni til að sjá um eldamennskuna í viku fengi Hermann Þorvaldsson starfið. Og hvers saknar kokkurinn mest úr eldhúsinu þegar hann er kominn í land? Ofnsins.

Í lok viðtalsins rifjar Ingólfur upp að þegar hann byrjaði sem kokkur hafi hann oft hringt í mömmu sína til að fá ráð við eldamennskuna. Það var á þeim árum sem þykka sósan rataði á diskana hjá skipsfélögunum.

Horfa má á viðtal Halldórs B. Halldórssonar við Ingólf hér að neðan.

Fréttin birtist fyrst á vef Vinnslustöðvarinnar.

Play Video

Nýjustu fréttir

Fiskur fjórum sinnum í viku á Breka VE
Styrktarsjóður Landakirkju veitir aðstoð fyrir jólin
Fjölgun brota endurspegli aukið ofbeldi
Eyjakonur mæta Stjörnunni í bikarslag í kvöld
Heimir og Írar fara í umspil í Þjóðadeildinni
Átján framúrskarandi fyrirtæki í Eyjum
Bærinn semur við kaupmenn um jólagjafakort
Fjarvarmi í Eyjum hækkaði um 4,81% í nóvember
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.