Guðmundur Tómas Sigfússon varð meistari Vöruhúsdeildarinnar í pílukasti 2026 eftir sigur á Sindra Sigfússyni í úrslitaleik deildarinnar í Höllinni síðastliðið laugardagskvöld.
Guðmundur vann Ólaf Birgi Vigfússon í undanúrslitum og Sindri tryggði sér sæti í úrslitaleiknum með sigri á Ívari Skæringi Vignissyni.
Pílufélag Vestmannaeyja hafði umsjón með deildinni. Mikil spenna var á úrslitakvöldinu og góð stemning í Höllinni þar sem fjölmenni fylgdist með keppendum berjast um meistaratitilinn.
Aðstandendur deildarinnar lýstu ánægju með hvernig til tókst og þökkuðu þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd kvöldsins og þeim sem mættu til að styðja keppendur. Þá færðu þeir Vöruhúsinu sérstakar þakkir fyrir stuðninginn við deildina.
1. sætið: Guðmundur Tómas Sigfússon.
2. sætið: Sindri Sigfússon.
3.-4. sætið: Ólafur Birgir Georsson og Ívar Skæringur Vignisson.
Flest 180 í deildinni: Guðmundur Tómas Sigfússon, 5 stk.
Hæsta útskot í deildinni: Ólafur Birgir Georgsson, 160.
Besti leggur í deildinni: Ólafur Birgir Georgsson og Guðjón Örn, 15 pílna legg.
Hæsta skor í partýpílunni: Garðar B. Sigurjónsson, 125.
Óskar Pétur Friðriksson tók myndir frá úrslitakvöldinu sem má sjá hér að neðan.

















































