Pökkun jólasælgætis Kiwanisklúbbsins Helgafells fór fram í gærkvöldi með aðstoð fjölda fólks. Klúbburinn segir gott að hafa margar hendur við verkið á verkstæði jólasveinsins.
Salan hefst um helgina og stendur áfram næstu daga og fram eftir desember. Askjan kostar 3.000 krónur og rennur allur ágóði til góðgerðarmála í samfélaginu. Allur ágóði rennur til góðgerðarmála í samfélaginu, með sérstakri áherslu á málefni barna.
Hér að neðan má sjá myndband frá pökkuninni.