Feðgarnir Erlingur Richardsson og Elmar Erlingsson fögnuðu báðir sigri með félagsliðum sínum í þýsku B-deildinni í handbolta um helgina. Erlingur stýrði GWD Minden til sigurs gegn Grosswallstadt í dag, en Elmar og félagar hans í Nordhorn-Lingen lögðu Lübeck-Schwartau að velli á föstudagskvöldið.
Minden heimsótti Grosswallstadt og hafði betur, 29–27, eftir spennandi leik. Með sigrinum heldur Minden áfram góðu gengi undir stjórn Erlings. Minden situr nú í 4. sæti deildarinnar með 19 stig. Grosswallstadt er í 11. sæti með níu stig.
Nordhorn-Lingen vann sannfærandi 38–26 sigur þegar liðið tók á móti Lübeck-Schwartau. Nordhorn leiddi með átta mörkum í hálfleik, 20–12.
Elmar kom að tíu mörkum í leiknum. Hann skoraði fjögur mörk og gaf að auki sex stoðsendingar.
Nordhorn-Lingen situr í 8. sæti deildarinnar með 14 stig, á meðan Lübeck-Schwartau er í 3. sæti með 20 stig.