Við erum svo ánægð með hversu fallega veitingarmenn og konur í Vestmannaeyjum hugsa til okkar þessa dagana. Segir í frétt á vef Hraunbúða. “Á föstudag og sunnudag fengum við ljúffengar íssendingar úr Tvistinum frá Bigga Sveins og Lóu. Á laugardagskvöldið sendu Pizza 67 okkur öllum gómsætar pizzur sem slógu í gegn. Við erum svo innilega þakklát því öll tilbreyting í lífið skiptir svo ótrúlega miklu máli, sér í lagi á þessum tímum.
Kærar þakkir frá Hraunbúðum :)”
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst