Aksjón í vinnslunni skemmtilegri en hangs við tölvuskjá
Marta Möller

Marta Möller er tökubarn Vinnslustöðvarinnar þannig séð. Látum samt fljóta með að hún er dóttir Rutar Ágústsdóttur og Jakobs Möller en ólst upp í grennd við Vinnslustöðina og í henni. Marta reyndi fyrir sér á öðrum starfsvettvangi en sogaðist aftur að Vinnslustöðinni, er þar orðinn verkstjóri í botnfiski og humri og nýtur tilverunnar.

„Pabbi flutti hingað til Eyja á gosárinu 1973 og vann fyrst í Fiskiðjunni og síðar í öllum deildum Vinnslustöðvarinnar. Ég á minningar frá því ég var þriggja eða fjögurra ára hnáta þegar við biðum heima í hádeginu eftir að hann kæmi heim úr vinnunni í mat. Hann var lengi verkstjóri í saltfiskverkun og síðar móttökustjóri bolfisks.

Pabbi er enn að, vappar um hafnarsvæðið og kemur að ís og löndun. Hann er ábyggilega eitt elsta húsgagn Vinnslustöðvarinnar og nú stefnir í að ég verði líka gamalt húsgagn hérna!

Ég byrjaði hjá pabba í saltfiskinum árið 2005 og var fastráðin hjá Vinnslustöðinni 2006. Fyrsta starfið sem yfirmaður fékk ég 2013, flokkstjóri í humarvinnslu. Ári síðar færði ég mig yfir í uppsjávarvinnsluna sem flokkstjóri og var jafnframt flokkstjóri í gæðamálum milli vertíða. Núna er ég verkstjóri í bolfiskvinnslu og humri.“

Marta Möller

Á vel við mig að vinna í fiski
Marta gerði heiðarlega tilraun til að skipta um starfsvettvang árið 2017 en henni mistókst! Hún réði sig til starfa á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum en sá ferill varði ekki nema í um sex mánuði. Þá sogaði Vinnslustöðin hana til sína á nýjan leik.

„Rötum við ekki alltaf heim á endanum?

Ég hafði reyndar fimleikaþjálfun sem aukabúgrein í nokkur ár með fiskvinnslunni en þann skamma tíma sem ég starfaði í Hraunbúðum vann ég jafnframt síðdegis við þrif í Vinnslustöðinni. Aðskilnaðurinn var nú ekki meiri en svo hálft ár!

Ég fann það bara vel að fiskvinnsla á vel við mig og þar líður mér vel. Starfið er fjölbreytt og gefandi og reynir nokkuð á mann líkamlega líka. Alltaf eitthvað nýtt sem lærist, mikil vinna og um margt að hugsa. Þannig vil ég líka hafa þetta.

Aksjónin í sjálfri vinnslunni er alla vega mun skemmtilegri en að sitja við tölvu og góna á skjá! Það er einfaldlega alltaf gaman í vinnunni.“

Nartar í huma og lætur það duga – enn um sinn
Marta Möller lifir og hrærist í fiski flesta daga en lætur það duga. Sjálf borðar hún helst ekki fisk. Þá rifjast upp fyrir skrifara að sama á við skipstjóra nokkurn sem hrærist í sjávarútvegi eins og nærri má geta en lætur ekki ofan í sig sjávarfang af neinu tagi fyrir nokkurn pening. Sá nærist helst ekki á öðru en sviðakjömmum með miklu smjöri sem viðbiti og sat reyndar á Alþingi um hríð. Þá vandaðist málið því ekki þótti viðeigandi að hafa svið og smjör alla daga á virðulegum hádegismatseðli löggjafarsamkomunnar. Vandi matseljanna leystist hins vegar sjálfkrafa þegar viðkomandi datt út af þingi.

Svona harðsvírað er ekki mataræði Mörtu. Langt í frá.

„Vinnslustöðinni þakka ég margt en ekki endilaga það að ég borða ekki fisk! Þannig er það bara eftir að ég fór að finna í fiskvinnslu. Kannski rjátlast þetta af mér með aldrinum, ég er aðeins farinn að geta nartað í humar á nýjan leik.“

Sameinuðu þjóðirnar í hnotskurn
Samstarfsfólk Mörtu er fjarri því að vera einsleitur hópur. Vinnslusalurinn er nánast smækkuð mynd af Sameinuðu þjóðunum. Þar er að finna fulltrúa margra þjóða héðan og þaðan af jarðarkringlunni.

„Starfsmannavelta ef lítil hjá okkur. Ákveðinn kjarni er hér svo árum og áratugum skiptir en auðvitað er alltaf eitthvað um endurnýjun og breytingar.

Við höfum útlenda starfsmenn sem sumir eru til skemmri tíma en aðrir ætla sér að vera. Þeir koma sér fyrir með fjölskyldur sínar, kaupa íbúðir eða hús og verða hluti af samfélaginu í Vestmannaeyjum.

Gott starfsfólk er gangverkið í fyrirtækinu.“

Nýjustu fréttir

Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka
Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.