Ekkert smit í Eyjum síðan tólfta ágúst

Engin ný smit hafa greinst í Vestmannaeyjum síðan 12. ágúst síðastliðinn. Enn eru sex einstaklingar í einangrun og 28 í sóttkví. 49 hafa lokið sóttkví.

Viðbrögð samfélagsins hafa verið gríðarlega góð allt frá því að veiran greindist hér eftir verslunarmannahelgi og tókst strax að hefta útbreiðslu hennar. Bæjarbúar hafa gætt vel að einstaklingsbundnum sóttvörnum auk þess sem almennar smitvarnir eru til fyrimyndar hjá stofnunum og fyrirtækjum í Vestmannaeyjum. Þannig hefur okkur tekist að halda samfélaginu gangandi og takast á við stöðuna. Þetta hefur tekist vel og er það þakkarvert.

F.h. aðgerðastjórnar,
Arndís Bára Ingimarsdóttir, aðgerðastjóri.

Nýjustu fréttir

Rúmlega þriggja metra dýpi í Landeyjahöfn – siglingar háðar sjávarföllum
Nærri 8.500 gestir sóttu IceFish
Vatnslekinn rakinn til ónýtrar lagnar við Sprönguna
Eyjablikksmótið fer fram í Vestmannaeyjum um helgina
Síðasti opni fundur Vina í bata á mánudag
ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.