Fundað um fyrirkomulag loðnuleitar
Vsv Lodna3
Markmið leiðangursins er að meta magn bæði ókynþroska og kynþroska loðnu á svæðinu milli Íslands, Austur-Grænlands og Jan Mayen.

Fyrirkomulag loðnuleitar í haust og vetur var til umræðu á fundi sem Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðaði til í gær með fulltrúum Hafrannsóknastofnunar og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Á fundinum fóru fulltrúar Hafrannsóknastofnunar yfir fyrirhugaða leit. Þar kom fram að hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson heldur í haustleiðangur á mánudaginn og stendur hann yfir í 22 daga. Jafnframt mun rannsóknarskip á vegum Grænlendinga taka þátt í leiðangrinum. Munu skipin leita í september og október fyrir norðan og vestan land en einnig langt norður með austurströnd Grænlands. Er tilgangur leiðangursins að meta stærð loðnustofnsins og veita endurskoðaða ráðgjöf um hámarksafla á komandi vertíð.

Engar loðnuveiðar hafa verið stundaðar síðustu tvær vertíðar og stofninn verið í lægð frá því að hlýna tók á Íslandsmiðum um síðustu aldarmót. Fyrir liggur ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) frá því í nóvember 2020 um veiðar á allt að 169.520 tonnum á loðnuvertíðinni 2020/21. Byggir ráðgjöfin á sameiginlegri nýtingarstefnu Íslands, Grænlands og Noregs og samkvæmt henni er upphafsaflamark vertíðarinnar 169.520 tonn. Í ráðgjöfinni kemur fram að hún verði endurskoðuð að loknum rannsóknum í september 2020. Samningur er um skiptingu loðnustofnsins milli Íslands, Grænlands og Noregs og fær Ísland 80% af ráðlögðum afla, Grænland 15% og Noregur 5%.

Á fundinum lagði Kristján Þór áherslu á mikilvægi þess að samstaða væri um fyrirkomulag leitarinnar og að allir aðilar þyrftu að róa í sömu átt. Vísaði hann til þess að aldrei hefur verið lagður meiri kraftur í leit að loðnu en á undanförnum tveimur árum Einhugur væri um að fylgja eftir þeirri áherslu á komandi misserum.

Nýjustu fréttir

Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Forsala á Þjóðhátíð 2026 hafin
Hitastig sjávar að vetri aldrei verið hærra
Heilbrigðismál
Saman erum við sterkari
Frambjóðendur á opnum kynningarfundi í Ásgarði
ÍBV sigraði botnlið ÍR í Eyjum
Loppumarkaður í Safnahúsinu um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.