Samræmdum prófum frestað við GRV

Í samræmdu könnunarprófi í íslensku í 9. bekk sem lagt var fyrir í morgun komu upp tæknileg vandamál í prófakerfi. Vandinn lýsti sér í því að margir nemendur áttu erfitt með að komast inn í prófin eða duttu út úr kerfinu áður en þeir höfðu lokið próftöku. Frá þessu er greint á heimasíðu Grunnskóla Vestmannaeyja.

Menntamálastofnun ber ábyrgð á framkvæmd samræmdra könnunarprófa í grunnskólum og harmar þau vandamál sem komu upp við fyrirlögn þeirra. Stofnunin er nú að greina stöðuna með þjónustuaðila prófakerfisins og vinna að viðeigandi úrlausn. Þar sem ekki hefur fengist fullnægjandi lausn á þeim vanda sem upp kom í morgun var nauðsynlegt að endurskoða fyrirlögn prófanna.

Að höfðu samráði við mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur verið ákveðið að fresta samræmdum könnunarprófum í stærðfræði og ensku í þessari viku.
Skólum er gefinn kostur á að leggja öll þrjú samræmdu könnunarprófin fyrir á tveggja vikna tímabili frá og með næsta mánudegi. Þannig hafi skólar val um hvaða próf þeir leggja fyrir og hvenær á tímabilinu 15.-26. mars. GRV mun nú skoða hvaða leið verður farin og mun upplýsa foreldra og nemendur í 9. bekk um framkvæmdina sem allra fyrst.

 

Nýjustu fréttir

ÍBV vann Álaborg í æfingaleik á Spáni
Dýpkun Landeyjahafnar kostaði 600 milljónir í fyrra
Gamla myndin
Eyjarnar lönduðu fullfermi í heimahöfn
Þakklát fyrir traustið sem mér hefur verið sýnt
Samþykktu rekstrarviðauka fyrir Náttúrustofu Suðurlands
Skoða byggingu sjúkrasundlaugar
Birgir Nielsen um tónlistina og lífið á skólabekk  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.