Heilbrigðisráðherra hefur í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis ákveðið að herða til muna sóttvarnaaðgerðir til að sporna við hraðri útbreiðslu Covid-19. Aðgerðirnar taka gildi á miðnætti. Almennar fjöldatakmarkanir verða 50 manns en með notkun hraðprófa verður heimilt að efna til viðburða með að hámarki 500 manns í sóttvarnahólfi. Opnunartími veitingastaða verður styttur um klukkustund. Hámarksfjöldi gesta á sund- og baðstöðum, líkamsræktarstöðvum og skíðasvæðum miðast við 75% af heimiluðum hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi. Reglugerð um þessar aðgerðir gildir til og með 8. desember.
Mikil fjölgun smita innanlands með vaxandi álagi á heilbrigðiskerfið, smitrakningu og sóttvarnahúsa er meginástæða hertra takmarkana. Vegna ástandsins hefur orðið veruleg röskun á ýmissi þjónustu Landspítala og skortur er á starfsfólki. Vaxandi álag er á Sjúkrahúsinu á Akureyri og sama máli gegnir um margar aðrar heilbrigðisstofnanir segir í minnisblaði sóttvarnalæknis til ráðherra. Þá sé starfsemi rakningateymis í uppnámi, sóttvarnahús að fyllast og álag á Læknavaktina og heilsugæsluna hefur aukist vegna faraldursins. Sóttvarnalæknir segir harðar sóttvarnaaðgerðir nauðsynlegar meðan unnið er að því að ná víðtæku ónæmi í samfélaginu með örvunarbólusetningum sem þegar eru hafnar. Gert er ráð fyrir að boða um 160.000 manns um allt land í örvunarbólusetningu fyrir áramót. Reglugerð um þessar aðgerðir gildir til og með 8. desember.
Minnisblað sóttvarnalæknis um innanlandstakmarkanir, dags. 11. nóvember 2011
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.