Áttunda umferð Olísdeildar karla heldur áfram í kvöld en klukkan 18 mæta leikmenn ÍBV á Ásvelli eftir tvo sigurleiki í röð og leika við Hauka sem deila efsta sæti deildarinnar með Valsmönnum. ÍBV er stigi á eftir liðunum. Haukar hafa unnið þrjár síðustu viðureignir sínar. Sigurlið leiksins á Ásvöllum í kvöld vermir toppsæti Olísdeildar næstu daga. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport.