Íbúafundur um umhverfis- og auðlindastefnu Vestmannaeyja

Vestmannaeyjabær hefur undanfarið unnið að umhverfisgreiningu sem mun liggja til grundvallar fyrir gerð umhverfis- og auðlindastefnu bæjarins.

Á íbúafundinum verða kynntar helstu niðurstöður umhverfisgreiningarinnar og farið yfir helstu viðfangsefni umhverfismála Vestmannaeyjabæjar. Markmið fundarins er einnig að fá fram hugmyndir frá íbúum varðandi aðgerðir fyrir umhverfisstefnu bæjarins.

Íbúafundurinn verður haldinn í Eldheimum þann 8. desember 2021 klukkan 17:00 og verður einnig streymt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar.

Vegna takmarkana eru þeir sem ætla að mæta á fundinn beðnir að skrá sig annað hvort með því að senda töluvóst á umhverfissvid@vestmannaeyjar.is eða hringja í síma 488 2530 milli klukkan 08:00 og 15:00. Þeir sem taka þátt í gegnum vefstreymi munu geta tekið virkan þátt í fundinum og borið upp spurningar í gegnum netið.

Nýjustu fréttir

Laugardagurinn á Þjóðhátíð í máli og myndum
Sex gistu fangageymslur eftir annasama nótt
Ein með öllu og Innipúkinn fengu sviðsljósið
Dagskrá sunnudags á Þjóðhátíð
Ágúst Þór brekkusöngvari Þjóðhátíðarinnar
Alltaf stuð í Eyjum
ÍBV tapaði Þjóðhátíðarleiknum gegn Fram
Þjóðhátíð fær fljúgandi start
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.