Áhrif breyttra reglna um sóttkví á skólastarf
26. janúar, 2022
Heilbrigðisráðherra hefur gert breytingar á reglum um sóttkví og smitgát sem tóku gildi frá miðnætti þriðjudaginn 25. janúar. Breytingarnar hafa ekki áhrif á reglugerð nr. 6/2022 um takmörkun á skólastarfi sem gildir áfram, til og með miðvikudagsins 2. febrúar nk.

Nú gilda eftirfarandi reglur um sóttkví og smitgát í tengslum við skólastarf:

Leikskóla-, grunnskóla- og frístundastarf

Börn á leik- og grunnskólaaldri, fædd 2006 og síðar, sem hafa orðið útsett fyrir COVID-19 sýkingu utan heimilis, t.d. í skólastarfi eða íþrótta- eða frístundastarfi, þurfa hvorki að fara í sóttkví né smitgát. Hafi þau hins vegar dvalið eða dvelja með einstaklingi í einangrun á heimili sínu þurfa þau að fara í sóttkví. Sóttkví vegna smitaðs einstaklings á heimili verður því áfram í gildi.

Fullorðnir sem verða útsettir fyrir smiti utan heimilis, t.d. í skólastarfi, fara í smitgát. Í því felst að viðkomandi ber grímu í margmenni og þegar ekki er hægt að halda 2 metra fjarlægð, hvort heldur er úti eða inni og forðast umgengni við viðkvæma einstaklinga. Smitgát varir í 5 daga og ekki þarf lengur í sýnatöku til þess að losna úr smitgát.

Í gegnum faraldurinn hefur verklag við smitrakningu verið þannig að þegar smit hefur komið upp í skólastarfi þá hafa foreldrar/forráðamenn verið upplýstir um slíkt. Með þeirri breytingu sem tekur gildi nú þá breytist það, þar sem ekki verður lengur þörf á rakningu innan skóla og tilkynna foreldrar/forráðamenn einungis um veikindi barna.

Framhaldsskólar

Framhaldsskólanemar sem verða útsettir fyrir smiti utan heimilis, t.d. í skólastarfi, fara í smitgát. Í því felst að viðkomandi ber grímu í margmenni og þegar ekki er hægt að halda 2 metra fjarlægð hvort heldur er úti eða inni og forðast umgengni við viðkvæma einstaklinga. Smitgát varir í 5 daga og ekki þarf lengur sýnatöku til þess að losna úr smitgát.

Hefðbundinni smitrakningu hætt

Breytingar þessar hafa í för með sér að hefðbundinni smitrakningu verður hætt í leik-, grunn- og framhaldsskólum frá og með miðnætti í kvöld, þriðjudaginn 25. janúar. Sóttkví þeirra nemenda sem nú þegar eru í sóttkví fellur niður frá sama tíma uppfylli þeir skilyrði þess.

Nánar um sóttkví

Stafi sóttkví af því að nemandi var útsettur fyrir COVID-19 á dvalarstað sínum, s.s. á sama heimili, skal hann dvelja áfram í sóttkví. Stafi sóttkvíin hins vegar af því að nemandi umgekkst einstakling með COVID-19 utan dvalarstaðar, s.s. í skólastofu, mun sóttkví nemandans verða aflétt með reglugerðarbreytingunni. Á þetta aðeins við um börn fædd 2006 og síðar. Börn fædd 2005 og fyrr og fullorðnir fara þá í smitgát. sbr. þó undantekningu varðandi þríbólusetta (smit telur sem ein bólusetning) sem eru útsettir á heimili.

Með reglugerðarbreytingunni verður ekki lengur heimilt fyrir einstakling í sóttkví að fara í skóla. Á hinn bóginn munu þríbólusettir (eða tvíbólusettir og með afstaðið COVID-19 smit) einstaklingar að jafnaði ekki sæta sóttkví heldur viðhafa smitgát og er foreldrum í slíkri stöðu heimilt að koma með barni í skólann.

Reglugerðarbreytingin felur ekki í sér neina breytingu á skyldu einstaklinga með tengsl við Ísland og eru að koma frá útlöndum, til að gangast undir próf til greiningar á COVID-19. Á hinn bóginn hefur slík skylda ekki náð til barna á leik- og grunnskólaaldri, sbr. 4. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar og stendur ekki til að breyta.

Kennarar gæti áfram vel að sóttvörnum

Í minnisblaði sóttvarnalæknis kemur fram að kennarar séu hvattir til að gæta vel að sóttvörnum, nota veiruheldar grímur og andlitshlífar sérstaklega ef þeir hafa ekki fengið örvunarskammt (þriðja skammt) bóluefnis. Full virkni örvunarskammts bóluefnis næst ekki fyrr en 14 dögum eftir bólusetninguna.

Fólk er áfram hvatt til þess að vera áfram vakandi fyrir einkennum og fara í PCR-próf.

Sjá einnig fréttatilkynningu heilbrigðisráðuneytis á vef Stjórnarráðsins

Nánari upplýsingar

Skólastjórnendur veita upplýsingar um fyrirkomulag kennslu og sóttvarnir í hverjum skóla. Fyrirspurnum frá skólasamfélaginu um sóttvarnaráðstafanir í leik- og grunn- og framhaldsskólum og viðmið í ljósi COVID-19 má beina á netfangið covid19@mrn.is.

Svör við algengum spurningum

Hér má finna nokkur svör við spurningum sem ráðuneytinu hafa borist í tengslum við fyrirhugaðar breytingar á sóttkví og smitgát.

1. Barnið mitt er núna í sóttkví – hvað gildir nú? Má barnið mæta í skóla- og frístundastarf á morgun?
Já, nema barnið sé í sóttkví vegna smits á heimili.

2. Barnið mitt er núna í einangrun – hvað gildir nú? Má barnið mæta í skóla- og frístundastarf á morgun?
Nei.

3. Barnið mitt er núna í smitgát – hvað gildir nú? Má barnið mæta í skóla- og frístundastarf á morgun?
Já.

4. Barnið mitt á að mæta í PCR á morgun – þarf það að mæta?
Já, ef barnið er í sóttkví vegna smits á heimili. Ef ekki er samt æskilegt að barnið fari í PCR próf.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Forsida 11 Tbl 2025
11. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.