Frækinn sigur á KR

Rok og rigning tók á móti liðunum í hressilegri vestanátt við Hástein. Sem er líklega skýringin á fáum en ansi kátum áhorfendum, en einungis 103 mættu á völlinn að þessu sinni.

Það voru æsispennandi lokamínúturnar þar sem Þórhildur Ólafsdóttir stal boltanum fimlega frá leikmanninn KR kláraði sjálf að marki og skoraði þriðja mark ÍBV, og það í uppbótartíma.

Niðurstaðan er 3-1 verðskuldaður sigur Eyjakvenna. Ljóst að liðið er í góðu jafnvægi og á flottri siglingu. En í leiknum í dag byrjuðu þær undir og unnu sig aftur inn í leikinn og héldu karakter uppi allan tímann.

Hin mörk ÍBV skoruðu Hanna Kallmeier og Rebekka Sverrisdóttir, en það síðara var sjálfsmark.

Stelpurnar okkar eru komnar upp í 4. sætið aftur með sigrinum en KR konur eru komnar á botninn.

Hart barist um boltann. Mynd: Sigfús Gunnar
Þórhildur skoraði þriðja markið í uppbótartíma. Mynd: Sigfús Gunnar
Það má fagna þessu! Mynd: Sigfús Gunnar
103 áhorfendur á leiknum í dag.
Þórhildur stelur boltanum.
Þórhildur skoraði af miklu öryggi.
Markinu er fagnað innilega á velli og í stúku.

Nýjustu fréttir

Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum
Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!
Omar Sowe fær tveggja leikja bann
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.