Starfsmenn fiskvinnslufyrirtækisins Hólmaskers í Hafnarfirði gerðu sér dagamun í morgun í tilefni af því að eitt ár var liðið frá því hjónin Jóhanna Steinunn Snorradóttir og Albert Erluson, eigendur Hólmaskers ehf., keyptu rekstur fiskvinnslu Stakkholts að Lónsbraut 1 og tóku við honum daginn eftir.
Fáeinum dögum síðar var greint frá því að Vinnslustöðin hf. hefði eignast 75% eignarhlut í Hólmaskeri á móti 25% hlut Jóhönnu Steinunnar og Alberts og að félagið yrði rekið áfram í óbreyttri mynd á sama stað með Albert sem framkvæmdastjóra.
Allt starfsfólk Stakkholts var ráðið til starfa hjá Hólmaskeri, um 40 manns. Megináhersla starfseminnar er og verður ýsuvinnsla fyrir Bandaríkjamarkað.
Albert Erluson segir að starfsemin á fyrsta árinu hafi gengið afar vel og samstarfið við meðeigandann í Hólmaskeri, Vinnslustöðina, reynst sérlega farsælt:
„Ég segi fyrir hönd okkar hjóna, og þykist vita að Vinnslustöðvarfólkið samsinnir mér, að rekstrarárangurinn og samstarfið yfirleitt hafi verið umfram væntingar að öllu leyti.
Við höfum á fyrsta árinu unnið tæplega 4.000 tonn af fiski, aðallega ýsu, og um 60% af fiskinum koma frá Vinnslustöðinni. Annar fiskur til vinnslu hjá okkur er aðallega keyptur á fiskmörkuðum.
Þegar við fórum af stað í fyrra gerðum við ráð fyrir því að þriðjungur fiskjarins bærist okkur af Vinnslustöðvarskipum en í reynd er hlutfallið miklu hærra. Um 90% af ýsuafla Vinnslustöðvarinnar fer hér í gegn hjá okkur. Þá ber að hafa í huga að auknar veiðiheimildir í ýsu stuðla að því að auka vinnsluhlutfallið gagnvart Vinnslustöðinni meira en líklega hefði gerst að óbreyttu.
Margt hjálpast til að kalla fram bros hjá okkur á eins árs afmælinu. Við höfum frábærlega öflugt, sérhæft og duglegt fólk í fiskvinnslunni, viðskiptavinirnir eru hæstánægðir með það sem frá okkur kemur og þar nefni ég auðvitað sérstaklega langstærsta kúnnann, Hign Liner Foods Inc. – með höfuðstöðvar í Nova Scotia. Húsið okkar er mjög hentugt og gott og vinnuumhverfið í samræmi við það.
Síðast en ekki síst nefni ég auðvitað baklandið okkar, Vinnslustöðina. Áður þekkti ég þetta fyrirtæki ekki nema af afspurn og í gegnum fjölmiðla, líkt og fólk flest. Nú þekki ég orðið eigendur, stjórnendur Vinnslustöðvarinnar og sjálft fyrirtækið býsna vel og get sagt með sanni að samstarfið hafi reynst gjöfult og farsælt.“































Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.