Tökum sjálfum okkur tak

Í fyrsta lagi elti óheppnin þær á röndum á sama tíma og hið unga og efnilega HK lið virtist hafa heppnina með sér. Ingibjörg Jónsdóttir kom til liðs við ÍBV, en hún stundar nám á Bifröst. �?ar eru einmitt svona leikmenn, sem við söknum svo sárt. Stapðan í halfleik var 15-13 f. HK. Fljótlega í s.h. náðu okkar stelpur að jafna 22-22.

�?á eiginlega byrjaði ballið fyrir alvöru. Leikurinn var stöðvaður og ritaraborðið krafðist þess, að eitt mark yrði tekið af liðinu. Mikil rekistefna varð og niðurstaðan varð sú, að staðan ætti að vera 22-21 okkur í óhag. �?rátt fyrir áköf mótmæli varð því ekki haggað. Mikið áfall, og HK stelpur gengu á lagið.

Í kjölfarið rigndi brottvísunum á okkar fólk og leikurinn tapaður. �?rjú rauð spjöld og alls kyns refsingar á okkar lið eftir að dómararnir misstu algjörlega tökin á leiknum. Lokastaða 33-30. Við getum ef til vill engum kennt um öðrum en sjálfum okkur hvernig fór. Greinilegt er þó, að ÍBV er ekki í neinu sérstöku uppáhaldi hjá ýmsum. �?essu þurfum við að breyta. Tökum sjálfum okkur tak. Förum að vinna með þeim, sem eru í forystu fyrir íþróttahreyfinguna á landsvísu.
Áfram ÍBV, áfram Ísland.

Friðbjörn �?. Valtýsson

Tekið af heimasíðu ÍBV, www.ibv.is

Nýjustu fréttir

Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.