Glenn sækir liðsstyrk til Eyja

Keflavík hefur samið við tvo nýja erlenda leikmenn sem báðar fylgja nýjum þjálfara liðsins úr Eyjum. Madison Wolfbauer og Sandra Voitane hafa báðar skrifað undir samning um að spila með Keflavík í Bestu deildinni. Báðar léku þær undir stjórn Jonathan Glenn hjá ÍBV í sumar en ÍBV lét Glenn fara eftir tímabili. Glenn tók síðan við Keflavikurliðinu sem spilar líka í Bestu deildinni.

Madison Wolfbauer er 23 ára fjölhæfur miðjumaður sem mun koma til með styrkja miðsvæði Keflavíkur. Madison spilaði með Bowling Green University og var fyrirliði liðsins þegar það tryggði sér MAC meistaratitilinn í NCAA deildinni.

Sandra Voitane er landsliðskona frá Lettlandi sem hefur leikið 47 leiki með landsliðinu og skorað í þeim 14 mörk. Þá hefur hún verið fyrirliði liðsins. Með landsliðinu hefur hún tvisvar unnið Baltic Cup. Sandra spilar sem bakvörður en getur leyst fleiri stöður á vellinum.

Nýjustu fréttir

Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.