Styrktarsjóður Landakirkju tekur við umsóknum

Styrktarsjóður Landakirkju veitir fólki sem hefur fasta búsetu í Eyjum aðstoð fyrir jólin og erum við byrjaðir að taka við umsóknum um aðstoð.  Sjóðurinn getur að sjálfsögðu ekki starfað nema vegna velvildar fyrirtækja og einstaklinga sem hafa í gegnum árin verið afar rausnarleg í framlögum sínum, sem hefur gert það að verkum að þau sem eiga erfitt með að ná endum saman hafa getað haldið gleðilegri jól en ella.

Prestar Landakirkju munu taka á móti fólki á skrifstofum sínum, og auðvitað er betra að vera fyrr en seinna á ferðinni, svo úthlutun geti farið sem fyrst fram í desember.

“Við viljum þakka þeim fjölmörgu sem styrkt hafa sjóðinn með framlögum sínum í gegnum tíðina um leið og við óskum Vestmannaeyingum nær og fjær gleðilegrar og kærleiksríkrar aðventu,” segir í tilkynningu frá Landakirkju.

 

Nýjustu fréttir

Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.