Eins og svo oft áður á goslokahátíð var gengin göngumessa frá Landakirkju klukkan ellefu í dag á sunnudegi gosloka. Gengið var í gíg Eldfells og endaði förin á Skansinum þar sem boðið var upp á súpu og brauð frá Einsa Kalda.

Þátttaka var góð og lék veðrið við göngugarpa sem margir hverjir voru á stuttermabolnum.

Gönguhópurinn í gíg Eldfells.
Blíðskapaveður á Skansinum.