Dagskráin á Þjóðhátíð í Eyjum heldur áfram að bæta við sig einvalaliði tónlistarfólks en í dag eru tilkynnt fimm frábær ný atriði á stóra sviðinu í Herjólfsdal – JóiPéxKróli, Sprite Zero Klan, Lukku Láki, Á Móti Sól og GRL Power.

ÁMS eru að spila á hátíðinni í 10.skipti, GRL Power skipa Salka Sól, Elísabet Ormslev, Þuríður Blær, Karó og Stefanía Svavars og rapparinn Lukku Láki að mæta á sínu fyrstu Þjóðhátíð eftir að hafa slegið í gegn með tónlist sinni sem kom út í byrjun sumars.

Þjóðhátíð fer fram dagana 2.-4.ágúst og fyrir var búið að tilkynna Friðrik Dór, Flóna, GDRN, ClubDub, Herra Hnetusmjör og Huginn en þessi fjögur síðastnefndu munu sjá um Húkkaraballið á fimmtudagskvöldinu.

Miðasala er í fullum gangi á https://dalurinn.is/