Að byggja upp atvinnu í Vestmannaeyjum
Frumkvöðlarnir, Daði og Hallgrímur.

„Það var alltaf hugmynd okkar Daða að byggja upp atvinnu í Vestmannaeyjum. Verandi í fiski höfðum við fylgst með uppgangi í fiskeldi í Noregi og Færeyjum. Fiskeldi á landi var það eina sem kom til greina og eitt leiddi af öðru. Markaður fyrir lax er í dag sá stærsti og hann er þekktasta varan og því eðlilegt að skoða laxeldi. Við erum svo heppnir að á Heimaey er þessa frábæra lóð sem Viðlagafjara er,“ segir Hallgrímur Steinsson sem ásamt Daða Pálssyni er hvatamaður að stofnun Laxeyjar ehf. sem stefnir að stórfelldu laxeldi í Vestmannaeyjum.

„Næsta skref var gerð viðskiptaáætlunar sem leit vel út. Við fundum strax fyrir miklum stuðningi innanbæjar og þá fór þetta að vinda upp á sig. Vestmannaeyingar eru almennt hlynntir atvinnuuppbyggingu og vilja halda áfram að byggja upp öflugt bæjarfélag. Margir mjög spenntir og bæjarstjórn jákvæð frá fyrsta degi,“ segir Hallgrímur og allt er á áætlun.

„Í síðustu viku tókum við síðasta hluta seiðaeldisstöðvarinnar í notkun og settum fisk í lokaþrepið. Þar er hann sjóvaninn og verður fluttur í eldisstöðina í Viðlagafjöru í nóvember í haust. Þar með erum við búnir að standa við allt sem við sögðumst ætla að gera í upphafi. Að ala lax frá eggi upp í fisk í sjó sem nær sláturstærð í fyllingu tímans,“ segir Hallgrímur.

„Já, framkvæmdaáætlanir hafa staðist og það eitt og sér er mikil áskorun. Þetta hefur ekki gengið þrautalaust, heimsfaraldur, tvö stríð í gangi og níu eldgos hafa unnið á móti okkur. Ekki síst þegar kemur að fjárfestum, að þeir fái trú á verkefninu og að við fáum fjármögnun á réttu verði. Allt hefur þetta tekist. Þar skiptir miklu máli fjölskylda Sigurjóns Óskarssonar sem stendur þétt við bakið á  okkur og eignarhaldið í Vestmannaeyjum. Þeir finna að krafturinn hér er meiri en víðast annars staðar. Það skiptir líka máli að við erum vel innan skekkjumarka með allar okkar fjárhagslegu áætlanir,“ segir Hallgrímur sem hlýtur að teljast til tíðinda á meðan áætlanir hins opinbera lenda allar í skrúfunni.

Kaffipása. F.v. Helga Stella, Eyjastelpa sem er fiskeldisfræðingur, Anne frá Danmörku, aðstoðarstöðvarstjóri í seiðastöð, Gísli Geir, tæknistjóri og Sigurjón Óskarsson.

Í hlutverki þjálfarans

Hallgrímur þakkar þetta þéttum hópi sem fylgist grannt með öllum kostnaðarliðum, nær árangri í innkaupum og hagstæðum samningum við byrgja og verktaka. „Það er mjög vel haldið utan um framkvæmdina hjá okkur og þessi hópur á mikið hrós skilið. Í allt er þetta góð liðsheild sem hefur náð þessum árangri. Fólk sem við höfum mikla trú á að eigi eftir að skila góðri vöru og haldi vel utan um reksturinn.“

Daði, sem er fyrrum handboltakappi tók undir með Hallgrími og sagðist horfa á þetta með augum þjálfarans. „Það er okkar hlutverk að fylla hverja stöðu með besta fólkinu. Líka fá fólk sem bætir mig sem er ekki fullkominn. Halli veit pínulítið meira en ég, stundum en ekki oft,“ segir Daði og hlær.

„Við teflum fram liði sem hentar þessu verkefni. Höfum valið rétta fólkið sem við þurfum. Hjá Laxey vinna um 40 manns og svo erum við með undirverktaka og ætli þeir séu ekki 100 til 120.“

Hvað verður hópurinn stór þegar starfsemin verður komin í fullan gang? „Það ræðst af því hvernig við ætlum að selja fiskinn okkar. Heill slægður lax er vinsælastur í dag og til að vinna hann þurfum við 30 til 40 manns. Flakaður lax og í neytendapakkningum kallar á miklu fleira fólk, allt að 130 manns,“ sagði Daði.

Myndir Óskar Pétur.

Nýjustu fréttir

Dramatískur sigur ÍBV á Haukum
Stórsigur ÍBV á Akureyri
Lengjubikarinn hófst í dag hjá ÍBV
Bongóblíða í Eyjum
Siglt á flóði til Landeyjahafnar
Hildur Sólveig sjúkraþjálfari: ,,Best að taka eitt skref í einu”
Svona hefð og svona stund styrkir samfélagið
Bæjareign við Ægisgötu sett í sölu

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.