Af miðunum í þjóðhátíðarstuð
Vestmannaey VE á leið á miðin. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE hélt til veiða sunnudaginn 19. júlí sl. að afloknu tæplega þriggja vikna stoppi. Heimasíða Síldarvinnslunnar sló á þráðinn til Egils Guðna Guðnasonar skipstjóra og spurði hvernig hefði gengið.

„Við byrjuðum í ýsu á Broadway og lönduðum rúmlega fimmtíu tonnum í Eyjum á miðvikudag. Síðan var farið í Skerjadýpið í þeim tilgangi að reyna við karfa. Í Skerjadýpinu vorum við í tæpa þrjá sólarhringa og lönduðum síðan um 55 tonnum af karfa í Grindavík í gær. Nú erum við á leiðinni á Ingólfshöfðann og er ráðgert að landa í Eyjum á miðvikudag. Síðan tekur við þjóðhátíðarstopp og mikið stuð,” sagði Egill Guðni.

Nýjustu fréttir

Logn og bros á Stórhöfða
Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi
Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Skjöldur haldinn í þriðja sinn
Erlingur til GWD Minden – Bergvin tekur við sem aðalþjálfari ÍBV
Heimir fagnaði 3-0 sigri gegn Ísrael
Það sem vikan skilur eftir sig
Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.