Aglow – Fyrsta samvera ársins í kvöld

Stjórn Aglow í Eyjum óskar ykkur gleðilegs árs. Fyrsta Aglow samvera ársins 2025 verður í kvöld 8. janúar kl. 19.30 í Safnaðarheimili Landakirkju. Það verður gott að koma saman og finna ferskan andlegan blæ og opna okkar andlegu skynjun og ganga áfram veginn. Um áramót hugsum við gjarnan um það sem liðið er og horfum fram á veginn. Við getum ekki breytt fortíð og framtíðin er ekki örugg. Við höfum aðeins líðandi stund.

Aglow hreyfingin starfar í yfir 170 löndum og hefur mikil áhersla verið að berjast gegn mannsali og hjálpa konum sem sem losna undan ofbeldi og vændi. Bænahópur Aglow í Eyjum hittist vikulega  og hafa konurnar verið trúfastar í bæn fyrir einstaklingum og ýmsum málefnum.   Á janúarfundinum ætlum staldra við og skoða stöðuna, því verður boðið  að segja frá því sem stóð upp úr á árinu og hvernig við horfum til framtíðar.

Flestar okkar hafa reynslu og snertingu sem vert er að deila með öðrum undrunum í lífi okkar. Við væntum þess að árið 2025 gefi okkur blessun og styrk til að leyfa Guði að snerta okkur.

 Því að ég þekki sjálfur þær fyrirætlanir sem ég hef í hyggju með yður, segir Drottinn, fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð. Jeremía 29.11

Allar konur velkomnar og þrátt fyrir hálku og snjó vonumst við eftir sem flestum!

Næstu Aglow fundir; 5. feb, 5. mars , 2. apríl  og 7. maí 2025.

Nýjustu fréttir

Saltfisksala hjá meistaraflokkum ÍBV
ÍBV með mikilvægan sigur á ÍR
Kveikjum neistann: Jákvæðar vísbendingar
Hvattning til Eyjamanna
Heilsuefling starfsfólks fær aukið vægi
Handhafar Frétta-píramída 1992-95
ÍBV sækir ÍR heim
Siglt til Þorlákshafnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.