Algjört ráðaleysi af hálfu ríkisins
Herjólfur_2023_ÓPF_DSC_1763
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Siglingar Herjólfs til Landeyjahafnar hafa verið afar stopular frá því í október og þá fyrst og fremst vegna dýpis við hafnarmynni og í höfninni sjálfri. Þá hefur þurft að sigla til hafnarinnar á háflóði þegar önnur skilyrði eru til staðar.

Í fundargerð bæjarráðs Vestmannaeyja segir að öllum sé ljóst að höfnin sé ekki sú heilsárshöfn sem lofað var á sínum tíma. Það er því nauðsynlegt að rannsóknir verði kláraðar og höfnin verði löguð þannig að hún þjóni sínu hlutverki allt árið um kring. Þolinmæði bæjarbúa gagnvart sjósamgöngum í vetur er á þrotum.

Vilja íbúafund með ráðherra og vegamálastjóra

Bæjarráð telur stöðuna óásættanlega í samgöngumálum við Vestmannaeyjar. Algjört ráðaleysi af hálfu ríkisins einkennir það verkefni að tryggja að Landeyjahöfn sé heilsárshöfn. Bæjarstjóri hefur fyrir hönd bæjarráðs, óskað eftir því að fá innviðaráðherra og vegamálastjóra, að mæta á íbúafund til Eyja í janúar til að fara yfir þá stöðu sem uppi er og þær lausnir og framkvæmdir sem eigandi hafnarinnar sér fyrir sér á komandi árum.

Bæjarstjóra var falið að óska eftir upplýsingum frá Vegagerðinni um það hvort og hvernig Björgun sé að standa skilyrði útboðs vegna dýpkunar í ljósi þess hve illa hefur gengið að dýpka höfnina undanfarna mánuði.

Að flugferðum verði fjölgað verulega

Bæjarráð skorar á þingmenn kjördæmisins og aðra sem valdið hafa að tryggja að löngu tímabærar endurbætur verða gerðar á höfninni og felur bæjarstjóra og koma niðurstöðu ráðsins á framfæri við þá sem málið varðar.

Þá ítrekar bæjarráð þá kröfu um að flugferðum milli lands og Eyja verði fjölgað verulega á meðan höfnin virkar ekki sem skildi, segir að endingu í bókun bæjarráðs.

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.