Alþingi samþykkti útboð á nýrri ferju
Eftir miklar umræður á Alþingi í gær var samþykkt heimild til að láta fara fram útboð vegna nýrrar Vest­manna­eyja­ferju. Í útboðinu skal valið standa milli þeirra kosta að gerður verði þjónustusamningur um smíði og rekstur skips til allt að tólf ára eða samið um smíði skips fyrir allt að 4,8 milljarða kr. á verðlagi í árslok 2015.
Vegagerðinni er heimilt, f.h. ríkissjóðs, að ganga að hagkvæmasta tilboði í annan hvorn kostinn, enda liggi fyrir fullnægjandi fjárheimildir til verk­efnisins eða tryggt að samningur sé með skýrum fyrirvara þar um. Gert er ráð fyrir að ferjan verði tilbúin árið 2018 og á að henta betur til siglinga í Landeyjahöfn en núverandi Herjólfur.

Nýjustu fréttir

Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Glódís Dúna valin í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM
Konunglegt drama í Sagnheimum
Neistinn úr Eyjum skilar árangri í Kópavogi 
Skáknámskeið fyrir byrjendur hefst í kvöld
Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum – myndband
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.