Jón �?skar �?órhallsson, einn af fararstjórum ferðarinnar heldur úti bloggsíðu þar sem hann greinir frá gangi mála í æfingaferðinni. Hér að neðan má lesa hluta af síðustu færslu Jóns frá því í gær.
Í dag lék 2. flokkur karla gegn u19 ára liði Lilleström frá Noregi og það má eiginlega segja að okkar strákar létu finna hressilega fyrir sér og lögðu þá norsku 4-1 með mörkum frá Gauta, Eiði, Agli og �?órarni Inga. Talað var um fyrir leik að hugsanlega yrði samettu liði 2. og meistaraflokks teflt fram í þessum leik, en niðurstaðan varð sú að 2. flokkurinn kláraði dæmið og þurfti enga aðstoð þeirra eldri til þess. Frábær úrslit og mikil uppörvun fyrir strákana sem takast á við ekki smærra verkefni en U19 ára lið VALENCIA á morgun, sem hlýtur að teljast til mestu ævintýra þessara drengja á knattspyrnuferlinum. �?eim líður eins og sannkölluðum Evrópumeisturum í dag !! 🙂
Meistaraflokkurinn æfði 2svar í dag og voru þetta fyrstu æfingar Lee Paul, sem bættist í hópinn í gær. Hann er til reynslu hjá félaginu og mun hann hafa góðan tíma með okkur hér á Spáni til að freista þess að heilla þjálfara upp úr skónum þ.a. honum verði boðinn samningur. Andrew Mwesigwa ætlaði að bætast í hópinn á morgun, þriðjudag, en hann missti af flugi frá Uganda í dag þaðan sem hann átti eftir að fljúga til Nairobi, þá til Amsterdam, þaðan til Madrídar, þar sem hann átti að taka vél til Alicante til móts við hópinn. �?etta mun tefja komu hans a.m.k. um sólahring, vonandi ekki meira. Við vorum farnir að hlakka til endurfunda á morgun.
Í fyrramálið kl. 09:30 mun ÍBV spila gegn sænska liðinu Vesteras og fá því loks leik til að spreyta sig hér úti, en hér hefur verið æft stíft og sumir leikmenn eiga fullt í fangi með að ráð við álagið og hefur aldursforsetinn, Yngvi Borgþórs verið duglegur að segja þeim yngri hversu gott það sé að leggja sig milli æfinga og hvíla lúin bein. Endurkoma Yngva hefur verið hópnum gleðigjafi og liðsstyrkur en Yngvi fór einmitt síðast í æfingaferð þegar Atli Eðvaldsson var þjálfari liðsins. Ánægjulegt að hann hafi lagt svo mikið á sig til að komast í gott form og legga sitt af mörkum að félagið skili sér aftur sem það á heima, í efstu deild.
Tekið af http://jonki.blog.is/blog/jonki/
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst