Sterkur lokakafli skilaði ÍBV sigri gegn Selfossi
Dagur Arnarsson í baráttunni í leiknum í kvöld. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

ÍBV tók á móti Selfossi í 2. umferð Olís deildar karla í Vestmannaeyjum í kvöld. Heimamenn fögnuðu sínum fyrstu stigum í deildinni með þriggja marka sigri, 30-27.

Eyjamenn voru með yfirhöndina í upphafi leiks og leiddu með tveimur mörkum, 7-5, eftir stundarfjórðung. Selfyssingar jöfnuðu leikinn undir lok fyrri hálfleiks, 10-10, og leiddu með einu marki í hálfleik, 13-14.

Selfyssingar héldu forskoti sínu í upphafi síðari hálfleiks og komust mest þremur mörkum yfir, 16-19. Eyjamenn jöfnuðu leikinn í 21-21 þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Eyjamenn reyndust sterkari á lokakafla leiksins og náðu forystunni þegar tæpar tíu mínútur voru eftir. Þeir héldu forskotinu út leikinn og unnu að lokum 30-27 sigur.

Dagur Arnarsson var atkvæðamestur í liði ÍBV með níu mörk. Sigurmundur Gísli Unnarsson átti góðan leik í marki ÍBV og varði 11 skot. Petar Jokanovic varði fimm skot.

Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 9, Kristófer Ísak Bárðarson 4, Magnús Dagur Jónatansson 3, Sigtryggur Daði Rúnarsson 3, Andri Magnússon 2, Daníel Þór Ingason 2, Jason Stefánsson 2, Sveinn José Rivera 2, Anton Frans Sigurðsson 1, Atli Steinn Arnarson 1, Haukur Leó Magnússon.

ÍBV er eftir tvo leiki í 7. sæti með tvö stig. Selfoss er í 10. sæti með núll stig.

 

Nýjustu fréttir

Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi – Samfylkingin styrkir stöðu sína
Staðfesta synjun á gagnabeiðni Eyjafrétta
Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband
Má skipta liði?
Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.