Sterkur lokakafli skilaði ÍBV sigri gegn Selfossi

ÍBV tók á móti Selfossi í 2. umferð Olís deildar karla í Vestmannaeyjum í kvöld. Heimamenn fögnuðu sínum fyrstu stigum í deildinni með þriggja marka sigri, 30-27. Eyjamenn voru með yfirhöndina í upphafi leiks og leiddu með tveimur mörkum, 7-5, eftir stundarfjórðung. Selfyssingar jöfnuðu leikinn undir lok fyrri hálfleiks, 10-10, og leiddu með einu marki […]

Emil Tumi sigurvegari í yngri flokki  

Hin árlega söngvakeppni barna fór fram í Herjólfsdal á laugardegi og sunnudegi um Þjóðhátíðina. Það voru þeir Emil Tumi og Hjörtur Leó sem stóðu uppi sem sigurvegarar, Emil Tumi í yngri flokki og Hjörtur Leó í þeim eldri. Í kjölfarið fengu þeir að stíga á stóra sviðið á sunnudagskvöldinu og flytja lög sín fyrir þjóðhátíðargesti […]

Stórum framkvæmdaráfanga að ljúka hjá Vinnslustöðinni

Umfangsmiklum framkvæmdum Vinnslustöðvarinnar við nýja uppsjávarvinnslu í Kima er að ljúka. Húsið er um 6.000 fermetrar á tveimur hæðum og þar verður meðal annars ný aðstaða fyrir innvigtun og flokkun uppsjávarfisks. Framkvæmdirnar hófust haustið 2023 og lokaúttekt hússins fer fram nú í september. Samhliða verður nýtt innvigtunar- og flokkunarkerfi tekið í notkun. Hluti framkvæmdanna var […]

Gildrur notaðar til fiskmerkinga við Vestmannaeyjar

Í sumar voru gerðar tilraunir við Vestmannaeyjar með notkun fiskigildra við merkingar fiska með rafeindamerkjum, svokölluðum DST-merkjum. Merkjunum er komið fyrir í kviðarholi fiskanna og skrá þau hitastig, dýpi og tíma með fyrirfram ákveðnu millibili. Með upplýsingunum má fá mikilvæga innsýn í ferðir fiskanna og hegðun þeirra.  Þegar fiskur með DST-merki veiðist aftur og merkinu er skilað […]

Treg veiði hjá Eyjaskipunum

jon_valgeirs_opf

Eyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE halda sínu striki á veiðum. Vestmannaey landaði í Grindavík á sunnudag og í Vestmannaeyjum í dag, en Bergey landaði í Eyjum í gær. Greint er frá þessu á vef Síldarvinnslunnar, þar sem rætt er við skipstjórana. Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, segir fyrri túrinn hafa verið hreinræktaðan karfatúr. […]

Gary Phillips og Parkman Cook til ÍBV

ÍBV hefur fengið til liðs við sig tvo leikmenn úr USA Team Handball, þá Gary Phillips og Parkman Cook. Þeir munu æfa og leika með ÍBV og HBH á komandi tímabili. Handknattleiksdeild ÍBV greindi frá þessu á samfélagsmiðlum sínum. Í tilkynningu handknattleiksdeildar segir að ÍBV hafi hafið samstarf við USA Team Handball, sem er þróunarverkefni […]

Dæluskipið Sebastiano Caboto komið til Eyja

Dýpkunarskipið Sebastiano Caboto er komið til Vestmannaeyja en skipinu er ætlað að sinna viðhaldsdýpkun í Landeyjahöfn. Koma skipsins markar upphaf verkefnis sem miklar væntingar eru bundnar við, enda skiptir dýpkun hafnarinnar miklu máli fyrir siglingar Herjólfs. Vegagerðin samdi fyrr á árinu við alþjóðlega verktakafyrirtækið Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar á tímabilinu 2026 til 2029. […]

Fyrsti heimaleikurinn – ÍBV fær Selfoss í heimsókn

Karlalið ÍBV í handbolta leikur sinn fyrsta heimaleik á tímabilinu í dag þegar Selfoss kemur í heimsókn. Flautað verður til leiks í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja klukkan 18:00. Bæði lið leita að sínum fyrstu stigum í Olísdeildinni. ÍBV tapaði 38:29 fyrir Haukum á útivelli í fyrstu umferðinni og situr í 11. sæti deildarinnar. Selfoss er í áttunda […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.