Gary Phillips og Parkman Cook til ÍBV
Mynd/ÍBV

ÍBV hefur fengið til liðs við sig tvo leikmenn úr USA Team Handball, þá Gary Phillips og Parkman Cook. Þeir munu æfa og leika með ÍBV og HBH á komandi tímabili. Handknattleiksdeild ÍBV greindi frá þessu á samfélagsmiðlum sínum.

Í tilkynningu handknattleiksdeildar segir að ÍBV hafi hafið samstarf við USA Team Handball, sem er þróunarverkefni sem snýst um að undirbúa bandaríska handboltaleikmenn fyrir Ólympíuleikana sem haldnir verða í Los Angeles í Bandaríkjunum sumarið 2028.

Liðin mættust fyrr í sumar þegar ÍBV var í æfingaferð í Hollandi. Bandaríska liðið var þá á ferðalagi um Evrópu til þess að æfa og spila við lið frá ýmsum löndum. Í kjölfarið hófst samtal þar sem bandaríska liðið hafði heyrt gott af ÍBV og því starfi sem er unnið hjá félaginu.

„Þeir eru í þeim fasa að vera að byggja upp handboltamenn, marga hverja frá grunni, og þeir töldu ÍBV vera góðan stað fyrir sína menn,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir einnig: ,,Gary Phillips er kraftmikil örvhent skytta. Gary var eftirsóttur hjá liðum víðs vegar í Evrópu, en forsvarsmenn USA Team Handball töldu ÍBV vera besta staðinn fyrir hann til þess að þróast og taka næsta skref sem handboltamaður.

Parkman Cook, sem er ungur miðjumaður/vinstri skytta, kemur líka til okkar enda töldu menn að Eyjar væru besti staðurinn fyrir hann til framþróunar.”

Handknattleiksdeild ÍBV hlakkar til að taka á móti Gary og Parkman og býður þá velkomna til ÍBV.

Nýjustu fréttir

Staðfesta synjun á gagnabeiðni Eyjafrétta
Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband
Má skipta liði?
Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.