Fyrsti heimaleikurinn – ÍBV fær Selfoss í heimsókn
Frá síðasta leik ÍBV og Selfoss í Eyjum. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson

Karlalið ÍBV í handbolta leikur sinn fyrsta heimaleik á tímabilinu í dag þegar Selfoss kemur í heimsókn. Flautað verður til leiks í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja klukkan 18:00.

Bæði lið leita að sínum fyrstu stigum í Olísdeildinni. ÍBV tapaði 38:29 fyrir Haukum á útivelli í fyrstu umferðinni og situr í 11. sæti deildarinnar. Selfoss er í áttunda sæti eftir 34:30 tap gegn Val á heimavelli.

Þrír leikir fara fram í annarri umferð deildarinnar í dag. Auk viðureignar ÍBV og Selfoss mætast Þór og HK á Akureyri klukkan 19:00 og Afturelding tekur á móti FH klukkan 20:15.

Það má búast við hörkuleik í Íþróttamiðstöðinni í kvöld þar sem Eyjamenn freista þess að komast á sigurbraut fyrir framan heimamenn.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Skráningarfrestur á atvinnulífssýningu Uppsprettu Suðurlands framlengdur
Sundlaugin lokuð vegna viðhalds – útisvæðið áfram opið
Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.