Treg veiði hjá Eyjaskipunum
jon_valgeirs_opf
Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Eyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE halda sínu striki á veiðum. Vestmannaey landaði í Grindavík á sunnudag og í Vestmannaeyjum í dag, en Bergey landaði í Eyjum í gær. Greint er frá þessu á vef Síldarvinnslunnar, þar sem rætt er við skipstjórana.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, segir fyrri túrinn hafa verið hreinræktaðan karfatúr.

„Við vorum með nánast fullt skip á sunnudaginn og aflinn var nær eingöngu karfi sem fékkst í Víkurálnum. Það var bara nudd þar til undir lokin og veðrið var hundleiðinlegt. Við fengum helming aflans á átta tímum í lok túrsins og því bjargaðist þetta,“ segir Egill Guðni.

Eftir löndun var haldið beint til veiða á ný. Veiðar hófust á Gordon og síðan var haldið á Pétursey, Síðugrunn og Ingólfshöfða áður en túrnum lauk á Víkinni.

„Þetta var nudd í þrjá sólarhringa og það þurfti að hafa fyrir þessu. Aflinn var rúm 40 tonn og mjög blandaður; þorskur, ufsi, ýsa, karfi, langa og blálanga,“ segir Egill Guðni.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, segir síðasta túr hafa verið heldur leiðinlegan. Skipið kom með um 60 tonn að landi eftir fimm sólarhringa á veiðum. Aflinn var blandaður, einkum ýsa, þorskur og ufsi.

„Við vorum fyrir sunnan land og þar var gott veður en lítill afli. Staðreyndin er sú að sjaldan er fiskur á þessum slóðum á þessum árstíma. Veðrið austur frá var hins vegar heldur leiðinlegt og því fórum við ekki þangað,“ segir Jón.

Bergey hóf túrinn á Pétursey og Vík. Þaðan var haldið á Broadway og Brekableiðu, síðan á Ingólfshöfða og Síðugrunnshorn. Túrinum lauk svo aftur á Ingólfshöfða.

„Almennt var veiðin treg, en þó fékkst eitt og eitt þokkalegt hol inn á milli,“ segir Jón. Bæði skip halda aftur til veiða síðar í dag.

Byggt á frétt af vef Síldarvinnslunnar.

Nýjustu fréttir

Staðfesta synjun á gagnabeiðni Eyjafrétta
Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband
Má skipta liði?
Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.