Dæluskipið Sebastiano Caboto komið til Eyja
Sebastiano Caboto komið til Eyja. Myndir: Óskar Pétur.

Dýpkunarskipið Sebastiano Caboto er komið til Vestmannaeyja en skipinu er ætlað að sinna viðhaldsdýpkun í Landeyjahöfn. Koma skipsins markar upphaf verkefnis sem miklar væntingar eru bundnar við, enda skiptir dýpkun hafnarinnar miklu máli fyrir siglingar Herjólfs.

Vegagerðin samdi fyrr á árinu við alþjóðlega verktakafyrirtækið Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar á tímabilinu 2026 til 2029. Fyrirtækið þekkir vel til aðstæðna við höfnina, þar sem það annaðist sambærileg verkefni á árunum 2015 til 2018.

Sebastiano Caboto var smíðað árið 2011 og er rúmlega 93 metrar að lengd og tæpir 20 metrar á breidd. Burðargeta skipsins er um 3.400 rúmmetrar og getur það unnið á allt að 26,5 metra dýpi.

Samkvæmt samningi Vegagerðarinnar verður unnið að dýpkun frá september og fram í apríl á hverju ári.

Eftir erfiðleika í samgöngum síðasta vetur eru vonir bundnar við að nýr samningur og öflugt dýpkunarskip stuðli að auknu öryggi og meiri fyrirsjáanleika í siglingum Herjólfs.

Nýjustu fréttir

Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband
Má skipta liði?
Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“
Göngustígur kominn að Sjónarhorni Flakkarans
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.