Umfangsmiklum framkvæmdum Vinnslustöðvarinnar við nýja uppsjávarvinnslu í Kima er að ljúka. Húsið er um 6.000 fermetrar á tveimur hæðum og þar verður meðal annars ný aðstaða fyrir innvigtun og flokkun uppsjávarfisks.
Framkvæmdirnar hófust haustið 2023 og lokaúttekt hússins fer fram nú í september. Samhliða verður nýtt innvigtunar- og flokkunarkerfi tekið í notkun. Hluti framkvæmdanna var nauðsynlegur vegna nýrra krafna hins opinbera, en tafir urðu meðal annars til þess að Vinnslustöðin gat ekki unnið makríl á þessu ári.
Willum Andersen, tæknilegur rekstrarstjóri Vinnslustöðvarinnar, fer yfir framkvæmdirnar og helstu breytingarnar í umfjöllun sem birtist fyrst á vef félagsins.
„Verkefnið hefur að mestu gengið vel þrátt fyrir að flækjustigið hafi verið töluvert,“ er haft eftir Willum í fréttinni. Hluti eldri veggja þróanna var nýttur við uppbygginguna en þeir reyndust ekki allir beinir, sem skapaði ýmsar áskoranir við hönnun og burðarþol hússins.
Undirbúningur hófst veturinn 2023 og um haustið var byrjað að rífa milliveggi og gólf í gömlu þróunum. Veturinn 2024 var unnið að lagningu lagna fyrir nýja hreinsistöð undir botnplötu hússins og uppbygging hússins hófst síðan um vorið.
Vorið 2025 var uppbyggingu hússins að mestu lokið og þá hófst frágangur innanhúss af fullum krafti. Ný hreinsistöð var tekin í notkun í nóvember sama ár og í febrúar 2026 var búnaði til þurrkunar loðnuhrogna komið fyrir á annarri hæð hússins.
Vorið 2026 hófst síðan flutningur á búnaði til flokkunar uppsjávarfisks og uppsetning nýs innvigtunarbúnaðar. Úrsláttarbúnaður var jafnframt fluttur frá uppsjávarfrystum inn á fyrstu hæð Kima.
Samhliða framkvæmdunum var hreinsistöð fyrir frárennsli uppsjávarvinnslunnar stækkuð verulega. Afköst hennar jukust úr 140 rúmmetrum á klukkustund í 400 rúmmetra.
Markmiðið er að tryggja að Vinnslustöðin standist kröfur um hreinsun til framtíðar og hafi svigrúm til frekari stækkunar uppsjávarvinnslunnar.
Ein helsta ástæða framkvæmdanna var ný löggjöf um innvigtun uppsjávarfisks. Hún kallaði á nýjan og umfangsmikinn búnað sem nauðsynlegt var að byggja yfir.
Willum segir að sjálf innvigtunin skili hvorki fyrirtækinu né sjómönnum auknum verðmætum, enda sé fjárfestingin fyrst og fremst gerð til að uppfylla kröfur hins opinbera.
Reynt hefur verið að nýta breytingarnar til að bæta innmötun á síldarflökunarvélarnar og auka afköst þeirra. Sá hluti framkvæmdanna geti skilað fyrirtækinu aukinni hagkvæmni og verðmætasköpun.
Framkvæmdirnar töfðust frá upphaflegri áætlun eftir að ákveðið var að endurskoða búnaðarkaup og leita leiða til að draga úr fjárfestingarkostnaði. Af þeim sökum gat Vinnslustöðin ekki unnið makríl á þessu ári. Nýja innvigtunar- og flokkunarkerfið verður tekið í notkun nú í september.
Næsti áfangi snýr að flutningi saltfiskvinnslunnar í nýtt húsnæði. Nánar verður fjallað um þann hluta framkvæmdanna þegar vinnslan verður tilbúin, segir að endingu í umfjölluninni á vef Vinnslustöðvarinnar.