Arnar í þjálfarateymi Fram

Arnar Pétursson mun verða í þjálfarateymi kvennaliðs Fram á komandi keppnistímabili í Olís deildinni.

Fréttavefur RÚV greinir frá að Rakel Dögg Bragadóttir verði næsti þjálfari liðsins í handbolta og segir jafnframt frá því að hún verði með landsliðsþjálfarann, Arnar Pétursson sér við hlið. Munu þau skrifa undir samninga við Fram síðar í dag, samkvæmt heimildum RÚV.

Arnar Pétursson stýrði íslenska kvennalandsliðinu á heimsmeistaramótinu í lok síðasta árs. Undir hans stjórn er Ísland svo komið með þátttökurétt á Evrópumótinu í Austurríki, Sviss og Ungverjalandi í lok þessa árs. Þetta eru fyrstu tvö stórmót íslenska kvennalandsliðsins frá árinu 2012.

Arnar æfði og spilaði með yngri flokkum ÍBV og hóf sinn meistaraflokksferil þar en spilaði einnig með Stjörnunni, FH og Haukum áður en hann fluttist aftur til Vestmannaeyja og tók við þjálfun ÍBV. Hann tók við liðinu í neðri hluta 1. deildar og undir stjórn Arnars varð ÍBV deildarmeistari í 1. deild 2013, Íslandsmeistari 2014 og deildar-, bikar- og Íslandsmeistari 2018.

Nánar má lesa um málið hér.

Nýjustu fréttir

Landsmót lúðrasveita haldið í Vestmannaeyjum
Hauststarfið að hefjast hjá Pílufélagi Vestmannaeyja
Fyrirvaralaus uppsögn kennara hjá Vestmannaeyjabæ ólögmæt
Sighvatur Bjarnason í vel heppnaðri Grænlandsför
Nýtt vefblað Eyjafrétta komið út
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar í morgunsárið
Bæjarbúar hvattir til að tryggja lausamuni
Endurskoða þarf hlutverk ríkisfjölmiðilsins frá grunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.