Í byrjun þriðju viku janúar mun RS. Árni Friðriksson halda til loðnuleitar og mælinga ásamt tveimur uppsjávarveiðiskipum. Óvissa hefur verið undanfarna daga með þátttöku veiðskipa í leitinni. Útgerðir uppsjávarskipa hafa komið að loðnuleit og mælingum á síðustu árum. Í ár stóð það einnig til. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) fyrir hönd útgerðanna hafa hins vegar óskað eftir því að greiðsla komi á móti útlögðum kostnaði.
Hafrannsóknastofnun hefur ótvírætt hlutverk að stunda stofnmælingar á loðnu líkt og á öðrum nytjastofnum og á grunni þeirra að veita stjórnvöldum ráðgjöf um veiðar úr þeim. Það var mat Hafrannsóknastofnunar að þörf væri á að fá tvö skip í tvær mælingar frá útgerðinni auk RS. Árna Friðrikssonar.
RS. Bjarni Sæmundsson er á leið í slipp með bilaða vél og er að auki óhentugur í loðnuleit vegna smæðar sinnar og þess utan er hann ekki með fellikjöl þannig að hann er fljótt sleginn út í bergmálsmælingum ef eitthvað er að veðri og sjólagi. Þann 8. janúar sl. náðist samkomulagi við SFS um að koma að leitinni á þeim forsendum að félagið legði til skip í samtals 30 daga, tvö skip í senn með það fyrir augum að ná tveimur góðum mælingum. Hafrannsóknastofnun stýrir leitinni og mælingum. Kostnaður útgerðanna sem af þessu hlýst er um 60 milljónir og leggur Hafrannsóknastofnun fram 30 milljónir. Ráðherra og ráðuneyti styðja þetta samkomulag.
Í fyrsta hluta verkefnisins sem hefst í þriðju viku janúar munu fara ásamt Árna Friðrikssyni uppsjávarveiðiskipin Hákon EA-148 og Bjarni Ólafsson AK-070 en önnur skip verða til taks síðar. Ætlunin er að ná mælingu í janúar og aftur í fyrri hluta febrúar og verða niðurstöður þeirra notaðar til grundvallar fyrir fiskveiðráðgjöf vetrarvertíðarinnar. Í febrúar verða einnig tvö veiðiskip með Árna Friðrikssyni í mælingum. Eins og gefur að skilja stjórnast gangur mælinga af veðrum og vindum á þessum árstíma sem og dreifingu loðnu. Því er ómögulegt að segja til um hvenær fyrstu niðurstöður munu liggja fyrir.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.