Ásgeir kveður ÍBV
Davíð Þór og Ásgeir Snær, mynd: ÍBV

Handknattleiksmaðurinn Ásgeir Snær Vignisson hefur samið við sænska liðið OV Helsingborg til tveggja ára og kveður þar með ÍBV í sumar eftir tveggja ára veru.

Ásgeir Snær er 23 gamall örvhent skytta sem kom til ÍBV frá Val þar sem hann lék upp yngri flokka og upp í meistaraflokk. „Hér um mjög spennandi tækifæri að ræða sem ég fullur tilhlökkunar að takast á við,“ sagði Ásgeir Snær í mjög stuttu samtali við handbolta.is

„Aðdragandinn að þessu var ekki langur en mér leist strax vel á þetta tækifæri þegar það kom upp á borðið. Það er gott að skipta um umhverfi til að takast á við eitthvað nýtt og reyna þannig að halda áfram að bæta sig sem handboltamaður,“ sagði Ásgeir Snær ennfremur.

Helsingborg vann næst efstu deild sænska handknattleiksins á dögunum og tekur sæti í úrvalsdeild á næsta keppnistímabili eftir eins árs fjarveru. Eftir að sæti í úrvalsdeild var í höfn á nýjan leik þá hafa forráðamenn félagsins verið í óða önn að þétta raðirnir fyrir næstu leiktíð og er koma Ásgeirs Snæs einn liður í þeirri viðleitni.

Heimasíða OV Helsingborg.

Nýjustu fréttir

ÍBV í úrslit eftir sigur gegn Haukum
Erfið staða í Land­eyja­höfn
Tvær flugferðir á dag á meðan beðið er opnunar Landeyjahafnar
Hinkrum við, vöndum okkur betur
ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.