Ásta Björt semur við Hauka
Ásta Björt Júlíusdóttir hefur gert samning við handknattleiksdeild Hauka um að leika með meistaraflokki félagsins næstu 3 árin. Ásta Björt kemur til liðs við Hauka frá ÍBV þar sem hún er uppalin og hefur leikið allan sinn feril. Frá þessu er greint á facebook síður Hauka nú í kvöld.
Ásta Björt er 22 ára örvhent skytta en getur einnig leyst stöðu hægri hornamanns. Ásta hefur nú á tímabilinu skorað 43 mörk í Olís deildinni og hefur hún verið í stóru hlutverki undanfarin ár hjá góðu liði ÍBV en á síðasta tímabili skoraði hún 111 mörk í 18 leikjum.
Við undirskriftina hafði Gunnar þjálfari þetta að segja: “Það eru frábærar fréttir fyrir Hauka að fá Ástu til liðs við félagið en hún er metnaðarfullur leikmaður sem mun passa vel inn í okkar unga og efnilega lið. Hún eflir hópinn og styrkir okkur verulega hægra megin á vellinum.“

Nýjustu fréttir

Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.