Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf

LifeLine Health og Vera Lífsgæðasetur hafa hafið samstarf en það var tilkynnt á Facebook síðu Veru lífsgæðaseturs í dag. LifeLine Health, sem stofnað er af Victori Guðmundsyni ásamt fleirum læknum býður upp á heilsufarsskoðanir og fjölþætta heilsueflingu sem miðar að því að bæta lífsgæði einstaklinga. Í verkefninu mun Vera Lífsgæðasetur koma að fræðslu og praktískum […]

Tafir vegna bilunar

Tafir hafa orðið á ferðum Herjólfs vegna vélabilunar. Skipið er að leggjast að bryggju í Þorlákshöfn þessa stundina og er stefnt að brottför þaðan til baka klukkan 12.30. Bilunin kom upp í morgun og er nú beðið eftir varahlut til að ljúka viðgerð. (meira…)

Dagskrá fyrsta Þorrablóts ÍBV klár

Þorrablót ÍBV fer fram föstudaginn 28. febrúar næstkomandi í Höllinni og er þetta fyrsta þorrablót á vegum félagsins. Dagskrá kvöldsins er nú klár og ljóst að gestir eiga von á skemmtilegu kvöldi. Veislustjóri kvöldsins er Stefán Einar og á svið stíga einnig Hipsumhaps og Stuðlabandið. Auk tónlistar verður uppboð, happadrætti og lukkuhjól. Þá verður ÍBV-skaupið […]

Fækkun sjúkrafluga milli lands og Eyja

Alls voru 79 sjúkraflug flogin milli lands og Vestmannaeyja á árinu 2025, samkvæmt upplýsingum frá Norlandair. Um er að ræða verulega fækkun frá árinu 2024 þegar sjúkraflug á sömu leið voru 153 talsins.  Eyjafréttir hafa enn ekki fengið endanlegar tölur frá Landhelgisgæslunni fyrir árið 2025, en gert er ráð fyrir að hluti fluganna hafi verið á hennar […]

Hárígræðslur í Tyrklandi 

Hármissir hefur lengi verið viðkvæmt umræðuefni hjá mörgum karlmönnun og oft eitthvað sem menn forðast að ræða opinberlega. Undanfarin ár hefur hárígræðsla þó orðið mun aðgengilegri, ekki síst í Tyrklandi, þar sem Íslendingar hafa í auknum mæli leitað sér aðstoðar.  Birkir Hlynsson er einn þeirra sem sjálfur hefur farið í hárígræðslu og hefur verið opinn með ferlið, miðlað reynslu sinni og […]

Áskorun til Vestmannaeyinga 

Undirrituð hefur nú fylgst með í dágóðan tíma hve algengt það er að börn fái sleikjó í Herjólfi. Hefur henni verið sagt að þetta sé gert til þess að slá á ógleði hjá börnunum en einnig að þetta sé til þess að kaupa smá frið. Börnin séu jafnvel vel undir 2 ára sem stingur hvað mest tannlæknahjartað. Frá sjónarhorni tannlæknis […]

Kristmundur Axel meðal listamanna á Hljómey

Skipuleggjendur Hljómeyjar hafa tilkynnt þriðja listamanninn sem fram kemur á hátíðinni í ár og er það tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel. Í tilkynningunni kemur einnig fram að nú séu alls 14 listamenn staðfestir á hátíðina í ár og von sé á frekari tilkynningum á næstu dögum. Kristmundur hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi um árabil og vakti […]

Önnur sýning á lifandi kvikmyndum í Sagnheimum

Gestum gefst aftur tækifæri til að skyggnast inn í fortíð Vestmannaeyja þegar sérstök sýning á lifandi kvikmyndum verður haldin í Sagnheimum laugardaginn 31. janúar. Þetta er annar viðburður sinnar tegundar, en sambærileg sýning fór fram 10. janúar og vakti mikla athygli. Sýningin samanstendur af kvikmyndum sem teknar voru á árunum 1924 til 1970, með megináherslu […]

Jason Stefánsson meðal útskriftarnema FÍV 

Nítján nemendur útskrifuðust úr Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum þann 19. desember síðastliðinn. Nemendur luku námi af sex mismunandi brautum og var útskriftinni fagnað með hátíðlegri athöfn í skólanum. Á önninni stunduðu yfir 270 nemendur nám í ólíkum námsleiðum og í fjölbreyttum áföngum.  Meðal útskriftarnema var Jason Stefánsson, sem lauk jafnframt grunnnámi í málm- og véltæknigreinum ásamt námi […]

Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan

Fimleikafélagið Rán á árangursríkt ár að baki og framundan eru spennandi verkefni á nýju ári. Í ágúst síðastliðnum fóru iðkendur í æfingabúðir til Svíþjóðar þar sem lögð var áhersla á tæknilega þróun og hópastarf. Í nóvember tók einn hópur þátt í móti og náði þar 2. sæti. Keppnistímabilið heldur áfram í febrúar næstkomandi þegar tveir […]

Áframhaldandi hvassviðri út vikuna  

Samkvæmt veðurspám er útlit fyrir áframhaldandi hvassviðri í Vestmannaeyjum út vikuna. Gert er ráð fyrir talsverðum vindi flesta daga, með rigningu eða skúrum á köflum. Vindur verður að mestu í austlægum áttum og má búast við hvössum hviðum. Hitastig verður svipað og undanfarið. Ölduspá er á bilinu 3–4 metrar út vikuna, en gert er ráð […]

Netöryggisfræðsla fyrir foreldra grunn- og framhaldsskólanemenda

Skúli Bragi Geirdal og Haukur Brynjarsson frá Netvís verða með fræðsluerindi um netöryggi fyrir foreldra og forráðamenn barna í 1.–10. bekk Grunnskóla Vestmannaeyja ásamt foreldra framhaldskólanemenda. Fræðslan sem átti upphaflega að fara fram í desember sl. var frestað og fer því fram í dag, 22. janúar kl. 17.30 í sal Framhaldsskólans Á erindinu verður fjallað […]

Áskriftarkort sundlaugagesta framlengd

Vestmannaeyjabær hefur ákveðið að framlengja áskriftarkort í sundlauginni um þrjá mánuði vegna tafa á framkvæmdum við innilaugina. Framkvæmdir hafa tekið lengri tíma en áætlað var og hefur því verið ákveðið að koma til móts þá sem eiga árskort í sundlaugina. Framlengingin fer sjálfkrafa fram og þurfa korthafar því ekki að aðhafast neitt. Lengri gildistími ætti […]

Sigurður Guðmundsson á Hljómey í ár

Tónlistarmaðurinn Sigurður Guðmundsson er annar þeirra tónlistamanna sem búið er að tilkynna að komi fram á Hljómey í ár. Sigurður er þekktur fyrir hlýjan hljóm, sterka texta og lög sem hafa fest sig rækilega í sessi hjá hlustendum víða um land. Sigurður er meðlimur hljómsveitanna Hjálmars, Baggalúts og GÓSS og hefur að auki gefið út […]

Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026

Goslokahátíðin 2026 fer fram dagana 2.–5. júlí. Undirbúningur er hafinn og kalla skipuleggjendur nú eftir hugmyndum og þátttöku frá íbúum, listafólki og fyrirtækjum. Óskað er eftir tillögum að dagskráratriðum, viðburðum, sýningum eða nýjum hugmyndum sem gætu orðið hluti af hátíðinni í ár. Allar hugmyndir eru vel þegnar og eru íbúar hvattir til að láta rödd […]

Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans

Á síðustu misserum hefur færst í vöxt að fólk stundi slökun, hugleiðslu og núvitund, sem og aðrar leiðir til að hlúa að andlegri og líkamlegri vellíðan. Kristín Ósk Óskarsdóttir er ein þeirra sem leggur mikla áherslu á hugleiðslu og hefur vakið athygli fyrir gong slökunartíma sína, þar sem hún sameinar tónheilun, reikiheilun og djúpa slökun […]

Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun

Herjólfur hefur gefið út að í dag og á morgun, 18. og 19. janúar verði siglt til Þorlákshafnar. Brottför frá Vestmannaeyjum : 07.00 og 16.00 Brottför frá Þorlákshöfn : 10.45 og 19.45 Farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað. Á þessum árstíma […]

Karlar hvattir til að sýna handverk

Í tilefni af bóndadags og upphafi Þorra verður haldinn handverksdagur karla í Safnahúsinu í Vestmannaeyjum laugardaginn 24. janúar. Markmiðið með deginum er að heiðra og varpa ljósi á fjölbreytt handverk karla í bænum. Leitað er eftir þátttakendum sem vilja sýna handverk sitt og jafnframt hafa tækifæri til að selja afurðir sínar á staðnum. Þeir sem […]

Staðan á framkvæmdum í sundlauginni

Í sundlaug Vestmannaeyja standa nú yfir umfangsmiklar framkvæmdir þar sem verið er að endurnýja búnað sem hefur verið í notkun frá upphafi. Markmið framkvæmdanna er að bæta vatnsgæði og auka öryggi gesta. Í því samhengi er verið að setja upp fimm nýjar sandsíur sem munu gegna lykilhlutverki í hreinsun sundlaugarvatnsins. Pípulagningarmenn vinna þessa dagana að […]

Páll Óskar kemur fram á Hljómey 2026

Skipuleggjendur Hljómeyjar tilkynntu í gær fyrsta listamann hátíðarinnar 2026 og er það enginn annar en poppstjarna Íslands, Páll Óskar Hjálmtýsson. Páll Óskar mun stíga á svið á Hljómey þann 24. apríl næstkomandi og lofar góðu stuði. Í tilkynningu frá Hljómey kemur fram að mikil tilhlökkun sé fyrir hátíðinni og að Páll Óskar sé sannkölluð hittaramaskína […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.