Vestmannaeyjabær leitar að dagforeldrum
default
Þörf er á fleiri úrræðum í dagvistun fyrir yngstu börnin í Vestmannaeyjum.

Vestmannaeyjabær auglýsti í dag eftir einstaklingum til að sinna daggæslu barna, eða svokölluðum dagforeldrum. Sem stendur er enginn starfandi dagforeldri í Vestmannaeyjum, en fram til þessa hafa flest börn fengið leikskólapláss um eins árs aldur. Nú virðist hins vegar þörf á fleiri úrræðum fyrir yngstu börnin.

Í auglýsingunni kemur fram að Vestmannaeyjabær veiti dagforeldrum starfsleyfi og sinni ráðgjöf og eftirliti með starfseminni. Dagforeldrar starfa með eigin gjaldskrá en sveitarfélagið mun greiða niður daggæslu samkvæmt ákveðnum reglum. Einnig verður veittur stuðningur við að koma upp aðstöðu ef þörf krefur, í samræmi við reglur sveitarfélagsins.

Nýjustu fréttir

Gul veðurviðvörun á Suðurlandi
Ný bók Sigurgeirs fangar mál, menningu og sögu Vestmannaeyja 
Óli á Stapa leiðir gesti um fjölskyldusýningu í Svölukoti
Erna Sólveig – Hjálparstarf í Afríku og nám í Svíþjóð
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Gabríela Máney
Blessuð sé minning starfshópsins
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Bjarki Þór
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Haraldur Dúi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.