Vestmannaeyjabær leitar að dagforeldrum

Vestmannaeyjabær auglýsti í dag eftir einstaklingum til að sinna daggæslu barna, eða svokölluðum dagforeldrum. Sem stendur er enginn starfandi dagforeldri í Vestmannaeyjum, en fram til þessa hafa flest börn fengið leikskólapláss um eins árs aldur. Nú virðist hins vegar þörf á fleiri úrræðum fyrir yngstu börnin. Í auglýsingunni kemur fram að Vestmannaeyjabær veiti dagforeldrum starfsleyfi […]
Magnús Kjartan ekki með brekkusönginn í ár

Tónlistarmaðurinn Magnús Kjartan Eyjólfsson mun ekki stýra brekkusöngnum í Herjólfsdal á Þjóðhátíð í ár. Magnús hefur stýrt brekkusöngnum síðan 2021 en segir nú tímabært að stíga til hliðar eftir að hafa ekki fundið sömu ástríðu fyrir verkefninu og áður. Magnús greinir frá ákvörð sinni í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann lítur yfir farinn veg […]
Konudagurinn er í dag

Í dag er konudagurinn, en hann er fyrsti dagur mánaðarins góu í gamla norræna tímatalinu, sem er sunnudagurinn í 18. viku vetrar á milli 18. og 25. febrúar. Konudagurinn er rótgróin hefð í íslensku samfélagi. Á þessum degi er góu fagnað, en hún boðar aukna birtu og minnir okkur á að vorið er á næsta […]
Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn

Herjólfur stefnir á að sigla til Landeyjahafnar seinnipartinn í dag eina ferð, föstudaginn 20. febrúar. Áætluð brottför frá Vestmannaeyjum er klukkan 17:00 og brottför frá Landeyjahöfn klukkan 20:15. Farþegar eru beðnir um að fylgjast vel með tilkynningum, þar sem breytingar á áætlun geta orðið með stuttum fyrirvara. Ef gera þarf breytingar verður það tilkynnt um […]
Skvísudagur á Bókasafninu um helgina

Bókasafnið býður upp á skemmtilega dagskrá n.k. laugardag, 21. febrúar þar sem sérstakur skvísudagur verður haldinn í tilefni konudagsins. Dagskráin fer fram í Sagnheimum kl. 13 þar sem rithöfundurinn Ása Marín kemur í heimsókn og fjallar um bækur sínar, segir frá hvað veitir henni innblástur ásamt því að lesa brot úr nýjustu bók sinni, Stjörnurnar […]
Snjóþungur öskudagur

Þrátt fyrir mikla snjókomu í dag létu börnin hvorki kulda né snjó aftra sér og mættu hress og kát til að syngja. Öskudagurinn var því litríkur og skemmtilegur eins og ávallt og iðaði bærinn af lífi þrátt fyrir veður. Krakkarnir sungu fyrir starfsmenn fyrirtækja og fengu sælgæti að launum. Hér má sjá nokkrar myndir frá […]
Gamla myndin

Rauðagerði var reist að hluta til fyrir söfnunarfé er safnaðist í Vestmannaeyjasöfnun Rauða kross Íslands vegna eldgossins á Heimaey 1973. Fyrsta skóflustungan var tekin í mars 1974 en húsnæðið var tekið í notkun í maí 1974. Rauðagerði verður á næstunni rifið og á lóðinni eiga að rísa íbúðarhús. (meira…)
Birgir Nielsen um tónlistina og lífið á skólabekk

Birgir Nielsen hefur starfað við tónlist og kennslu um árabil og er vel þekktur í menningar- og tónlistarlífi Vestmannaeyja. Hann hlaut titilinn bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2024 og kennir nú í Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Samhliða tónlistinni hefur hann á síðari árum stundað nám við FÍV í iðngreinum. Í viðtalinu ræðir Birgir um uppvöxt sinn í tónlistinni, hljómsveitarferilinn, kennsluna, námið á fullorðinsárum og þau fjölmörgu verkefni […]
Valentínusardagurinn er í dag

Valentínusardagurinn er í dag, 14. febrúar. Dagurinn hefur ekki verið mjög áberandi hér á landi en hefur á undanförnum árum orðið sífellt vinsælli. Valentínusardagurinn er tileinkaður ást og vináttu og margir sýna ástvinum sínum hlýju með gjöfum, blómum, kortum eða samveru. Dagurinn á rætur að rekja til heilags Valentínusar, en í dag snýst hann fyrst […]
Búningaskiptimarkaður á bókasafninu

Það styttist í Öskudaginn og eflaust margir krakkar og foreldrar farnir að huga að búningum fyrir daginn. Bókasafn Vestmannaeyja hefur brugðið á það ráð að setja upp skemmtilegan búningaskiptimarkað til að auðvelda undirbúning fyrir daginn. Markaðurinn er hugsaður sem einföld og umhverfisvæn leið fyrir fjölskyldur og einstaklinga til að endurnýta búninga fyrir hátíðina. Hægt er […]
Opnunarhátíð Sea Life um helgina

Þann 14. og 15. febrúar, n.k. verður opnunarhátíð í Sea Life Beluga Whale Sanctuary. Hátíðin stendur frá kl. 11:00 til 16:00 báða dagana. Boðið verður upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir gesti og fjölskyldur. Á milli kl. 13:00 og 15:00 verður opninn markaður þar sem nokkrar verslanir í Eyjum verða með sölubása. Aðgangur verður ókeypis þessa […]
Perlað fyrir Kraft í Höllinni

Félagið Kraftur, sem styður ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra, stendur fyrir perlun armbanda í Höllinni í Vestmannaeyjum laugardaginn nk. frá klukkan 13-16. Viðburðurinn er hluti af árlegri fjáröflunar- og vitundarvakningu félagsins. Að þessu sinni verður perlað nýtt „Lífið er núna“ armband, sem margir þekkja sem tákn um styrk, von og […]
Fullorðinsfimleikar hjá Rán

Fimleikafélagið Rán mun í mars bjóða upp á sérstakt námskeið í fullorðinsfimleikum. Um er að ræða fjögurra vikna námskeið þar sem fullorðnum (16 ára og eldri) býðst að koma að æfa fimleika. Námskeiðið hentar fullorðnum á öllum getustigum sem vilja prófa skemmtilega og fjölbreytta hreyfingu í góðum félagsskap. Æfingar fara fram á fimmtudögum kl 19:15 […]
Gugusar fimmti tónlistamaðurinn á Hljómey

Hljómey hefur tilkynnt fimmta listamanninn sem mun koma fram á hátíðinni í ár sem fer fram 24. apríl næstkomandi. Það er tónlistarkonan Guðlaug Sóley, betur þekkt undir listamannsnafninu Gugusar. Gugusar er þekkt fyrir hlýjan og melódískan indie-poppstíl með persónulegum og einlægum textum og hefur vakið athygli fyrir kraftmikla sviðsframkomu. Gusgusar er fimmti listamaðurinn sem tilkynntur […]
Tónlistarsköpun fyrir ungmenni í Féló

Féló bíður upp á nýjung hjá sér það sem opnað hefur verið svokallaðð sköpunarhús. Hugmyndin er að unglingar og ungt fólk fái tækifæri til að koma í stúdíó og vinna að eigin tónlist undir leiðsögn starfsmanns. Verkefninu er ætlað að efla sköpun og áhuga á tónlist í hvetjandi umhverfi. Boðið verður upp á kynningardaga 9. […]
Hildur Sólveig sjúkraþjálfari: ,,Best að taka eitt skref í einu”

Nýtt ár virðist fyrir marga marka ákveðin kaflaskil og gefa tækifæri til að líta yfir heilsu, venjur og daglega rútínu. Margir setja sér ný markmið um aukna hreyfingu, betri líðan og heilbrigðari lífsstíl. En hvað er raunhæft, hvað er skynsamlegt og hvernig forðumst við að fara of geyst af stað? Við ræddum við Hildi Sólveigu […]
Bríet kemur fram á Hljómey

Bríet kemur fram á Hljómey sem haldin verður þann 24. apríl n.k., en það var tilkynnt rétt í þessu af skipuleggjendum hátíðarinnar. Bríeti ættu flest allir að þekkja en hún hefur á undanförnum árum skipað sér sess sem ein vinsælasta tónlistarkona landsins og er þekkt fyrir sterka sviðsframkomu og persónulega texta. Bríet er þar með […]
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77

Hér í Eyjum má finna fjölmörg falleg heimili með ólíkan stíl og áhugavert skipulag. Við skoðum eignir sem eru á markaði og/eða í byggingu og rýnum í hvað gerir þær sérstakar. Við förum í gegnum skipulag, hönnun og þau smáatriði sem fanga athygli og fáum innsýn um stöðu og strauma á fasteignamarkaðnum hér í Eyjum. […]
Eyjamaðurinn: Elís Þór

Elís Þór Aðalsteinsson handboltamaður, íþróttamaður æskunnar eldri, er Eyjamaðurinn að þessu sinni. Aldur? 18 ára. Fjölskylduhagir? Mamma (Katrín) og pabbi (Aðalsteinn), tvær systur Eva og Telma og síðan á ég líka hund. Hvaða þýðingu hefur það fyrir þér að vera valin/valinn íþróttamaður æskunnar? Það er heiður að fá að vera valinn íþróttamaður æskunnar og er ég þakklátur fyrir að hafa unnið það og hvetur mann til að gera en betur. Hvernig er venjulegur dagur í þínu lífi? Hann er oftast mjög svipaður: skóli-lyftingar-æfing og síðan reynir maður að slaka aðeins á. Aðal áhugamál fyrir utan íþróttir? Að Ferðast getur verið veisla. Síðasta hámhorfið? Absentia á Netflix (mæli með). Hver er þín helsta fyrirmynd í íþróttum? Ómar Ingi Magnússon er mín helsta fyrirmynd. Mottó? Þeir skora sem þora. Hvert stefnir þú handboltanum? Ég stefni eins langt og hægt er. Hvað óttast þú mest? Meiðsli. Hvað hefur staðið upp úr á tímabilinu hingað til? Leikurinn á móti Aftureldingu í deild hefur staðið upp úr hingað til. Hvaða þrjá einstaklinga tækir þú með á eyðieyju og af hverju? Ætli maður tæki ekki Jón Gunnar fyrir fyrir góðan vinskap, Ólaf Má, alltaf stutt í grínið á þeim bæ og Birkir til að koma smá viti í þennan hóp. Sturluð staðreynd um sjálfan þig? Nota hægri í allar íþróttir nema handbolta. Hefur þú stundað aðrar íþróttir en handbolta? Já fótbolta, golf og sund. Hvenær byrjaðir þú að æfa handbolta? Held ég hafi verið 5 ára. Hvað er velgengni fyrir þér? Velgengni fyrir mér er þegar maður er búin að vera leggja mikið á sig og æfa vel og þegar þeir hlutir byrja að sýna sig […]
Tveir handteknir í tengslum við andlát

Lögreglan á Suðurlandi hefur handtekið tvo einstaklinga í tengslum við rannsókn á andláti á hjúkrunarheimili í Vestmannaeyjum. Báðir hafa stöðu sakbornings í málinu. Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, staðfestir að hvorugur hinna handteknu hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á þessu stigi. Samkvæmt heimildum mbl.is er um tvo starfsmenn stofnunarinnar að ræða, þar […]