Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma

Fimmti þáttur sýningarraðarinnar “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma” verður sýndur laugardaginn 14. mars kl. 11.00–12.00 í Sagnheimum. Eins og fyrri þáttum er mest fjallað um tímabilið 1950-1960, en einnig bregður fyrir eldri og nýrri klippum. Meðal þess sem kemur fyrir í þessum þætti eru byggingaframkvæmdir, 17. júní hátiðarhöld, Hásteinshlaupið, skrúðganga upp Kirkjuveg, útimessa við […]

Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða

Hér í Vestmannaeyjum má finna fjölbreyttar fasteignir með ólíka kosti, staðsetningu og möguleika. Í fasteignaumfjöllun Eyjafrétta skoðum við eignir sem eru til sölu hverju sinni og rýnum í hvað gerir þær áhugaverðar fyrir væntanlega kaupendur. Farið er yfir skipulag, helstu kosti og þá þætti sem geta skipt máli við val á nýju heimili.  Að þessu […]

Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf

Fulltrúar Kvenfélagsins Líknar komu í dag í heimsókn á HSU þar sem þær færðu stofnuninni nýtt ómskoðunartæki. Gjafir af þessu tagi hafa lengi verið mikilvægur þáttur í starfi félagsins, en Líknarkonur hafa í gegnum árin lagt sitt af mörkum til að bæta aðstöðu og þjónustu fyrir sjúklinga og starfsfólk. Kvenfélagið Líkn hefur um langt skeið […]

Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja

Áfanginn Listir og menning er þverfaglegur skylduáfangi á 2. þrepi á bóknámsbrautum FÍV, þar sem stokkið er ofan í suðupott þar sem hráefnin eru: mannfræði, félagsvísindi, stjórnmál, listasaga, dægurmenning og svo mætti lengi telja.  Margir spyrja sig e.t.v. hvaða erindi áfangi eins og Listir og menning eigi við okkur í nútímasamfélagi og hvað þá sem skylduáfangi? Svarið er […]

Þarftu að fara á fund?

Stundum spyrja börnin mín einfaldra spurninga sem eru samt þær erfiðustu. „Af hverju ertu að fara á fund?“ „Þarftu að fara á fund?“ Þau sjá að þetta tekur tíma. Þau sjá að ég les yfir gögn á kvöldin. Ég segi þeim að þetta skipti máli. Að ákvarðanir sem eru teknar á þessum fundum hafi áhrif […]

Tjaldsvæði opnað inni í Herjólfshöll á Þjóðhátíð

Gestir á Þjóðhátíð munu í ár hafa möguleika á að tjalda inni í Herjólfshöll, en greint var frá þessu inn á Vísi í dag. Áður hefur þurft að hleypa tjaldgestum inn í Herjólfshöll í neyð þegar veður hefur verið slæmt, en í ár verður í fyrsta sinn boðið upp á að bóka tjaldstæði þar óháð […]

Örlygur Helgi ,,fyrst og fremst heiður”

Örlygur Helgi Grímsson var valinn kylfingur ársins 2025 hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja, en greint var frá valinu á aðalfundi klúbbsins sem fram fór þann 29. Janúar síðastliðinn. Viðurkenningin er veitt fyrir framúrskarandi árangur og ástundun á árinu. Örlygur er því Eyjamaður mánaðarins að þessu sinni og fengum við hann til að svara nokkrum laufléttum spurningum um lífið og golfið.   Aldur? 44 ára. Fjölskylduhagir?  Giftur Kolbrúnu Stellu Karlsdóttur og saman […]

Þóra Guðný og Svenni um bygginarframkvæmdina  

Þóra Guðný Arnarsdóttir og Sveinn Jose Rivera leggja nú lokahönd á byggingu nýs 266 fermetra heimilis í Goðahrauni. Í húsinu eru fimm svefnherbergi ásamt þremur baðherbergum. Þau segja ferlið hafa verið skemmtilegt en um leið krefjandi og að það hafi kennt þeim margt um þolinmæði og samvinnu. Við ræddum við Þóru Guðnýju og fengum að heyra nánar frá ferlinu og ákvörðuninni um að ráðast í nýbyggingu.  „Þetta […]

Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló

Í gær fór fram undankeppni hönnunarkeppninnar Stíls á sviði Leikfélags Vestmannaeyja þar sem nemendur í 8.–10. bekk sýndu afrakstur vinnu sinnar. Keppnin er samstarfsverkefni Grunnskóla Vestmannaeyja og Féló og er hluti af keppni sem haldin er á vegum Samfés. Þema keppninnar í ár var „Á tímum Viktoríu“ og sækir innblástur í tískustíl Viktoríutímabilsins. Nemendur hönnuðu […]

Evrópudagur talþjálfunar er í dag

„Ert þú ekki þarna þessi tal-læknir?“ var ég einu sinni spurð af unglingi sem ég hitti á förnum vegi. Ég brosti og svaraði: „Jú, ég er talmeinafræðingur – og þú varst alltaf að koma til mín einu sinni.“ Hann hugsaði sig aðeins um og sagði svo: „Já… þú bjargaðir lífi mínu.“ Það er erfitt að […]

Forsala á Þjóðhátíð 2026 hafin

Forsala á miðum á Þjóðhátíð hófst í dag á tix.is Líkt og undanfarin ár er búist við mikilli eftirspurn eftir miðum og því ráðlagt að tryggja sér miða tímanlega. Einnig er búið að opna fyrir bókanir í Herjólf fyrir verslunarmannahelgina og því geta þeir sem hyggjast sækja hátíðina þegar farið að skipuleggja ferðalagið til og […]

Loppumarkaður í Safnahúsinu um helgina

Bókasafnið verður með svokallaðann loppumarkað í anddyri Safnahússins á laugardaginn n.k. Gestir geta komið og skoðað það sem er í boði og gert góð kaup á notuðum flíkum eða hlutum. Loppumarkaðurinn er einnig góður kostur fyrir þá sem vilja versla á umhverfisvænan hátt. Athygli er vakin á því að söluaðilar verða ekki með posa og […]

Óhagsætt sjólag þegar nær dregur helgi

Farþegar sem hyggjast ferðast með Herjólfi föstudaginn 6. mars og fyrri hluta laugardags 7. mars eru hvattir til að fylgjast vel með tilkynningum þar sem aðstæður til siglinga eru ekki hagstæðar. Samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi eru allar ferðir enn á áætlun til og frá Þorlákshöfn. Hins vegar gæti þurft að gera breytingar á áætlun ef […]

Undankeppni Stíls á morgun

Undankeppni hönnunarkeppninnar Stíls fer fram á sviði Leikfélags Vestmannaeyja á morgun, 5. mars, klukkan 17.30. Þema keppninnar í ár er „Á tímum Viktoríu“ og munu þátttakendur sýna hönnun sem sækir innblástur í tískustíl þess tímabils. Aðgangur að viðburðinum er ókeypis og eru allir velkomnir að mæta og fylgjast með Sigurlið undankeppninnar tryggir sér sæti í […]

Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  

Loðnuvertíðin er annasamur tími fyrir sjómenn og til að halda orkunni og stemningunni uppi skiptir góð næring og vel skipulagt eldhús máli. Hólmgeir Austfjörð eða Geiri eins og hann er oft kallaður starfar um borð í Heimaey VE 1 og kokkar þegar Jónas er fríi. Hólmgeir þekkir því vel hvað þarf til að halda áhöfninni ánægðri og vel nærðri á miðunum.  Geiri hefur […]

Bjargið fær rausnarlega gjöf

Bjargið fékk á dögunum veglega gjöf frá Kvenfélagi Landakirkju þegar félagið afhenti nýtt skynjunartæki sem ætlað er að efla hreyfingu og örva skynjun hjá eldra fólki. Kvenfélagið safnaði fyrir tækinu með það að markmiði að styðja við velferð og lífsgæði. Um er að ræða öflugt hjálpartæki sem mun nýtast vel í daglegu starfi og stuðla […]

Loðnufrysting í fullum gangi

„Loðnuvertíðin hefur gengið vel til þessa,“ segir Eyþór Harðarson útgerðarstjóri Ísfélagsins. „Veðrið hefur verið þannig að veiðar hafa verið stundaðar alla daga og vinnslurnar með stöðugt hráefni til frystingar. Ísfélagsskipin fjögur er búin að landa um 13.500 tonnum samtals þegar þessi frétt fór í loftið. Nú tekur við nokkurra daga pása þar til við hefjum […]

Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur til alþjóðlegra verðlauna

Golfvöllurinn í Eyjum hefur verið tilnefndur til verðlauna á World Golf Awards 2026, sem teljast meðal virtustu alþjóðlegu viðurkenninga í heimi golfíþróttarinnar. Kom þetta fram á heimsíðu Golfklúbbs Vestmannaeyja. Völlurinn fær tilnefningu í tveimur flokkum, annars vegar sem besti golfvöllur Evrópu og hins vegar sem besti golfvöllur Íslands 2026. Tilnefningar eru byggðar á mati fagfólks […]

Þuríður Matthíasdóttir hannar einstakt skart  

Þuríður Matthíasdóttir, eða Þura eins og hún er oft kölluð er handverkskona sem hefur lengi haft ástríðu fyrir sköpun og unnið með ýmis konar verkefni í gegnum tíðina. Á síðustu árum hefur silfursmíði orðið sífellt stærri hluti af hennar sköpun, þar sem hún vinnur bæði nýtt efni ásamt því að gefa gömlu silfri nýtt líf í formi persónulegra […]

Vestmannaeyjar í gegnum linsu tímans

Fjórði þáttur sýninganna “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma” verður laugardaginn 28. febrúar kl. 11.00–12.00 í Sagnheimum. Á undan eins og á fyrri sýningum verður sýnt stutt myndbrot og myndir. Nú fjöllum við um togspilið í Klaufinni  sem er löngu orðið eitt af kennileitum á Heimaey og strand breska togarans Star of the East í […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.