Óhagsætt sjólag þegar nær dregur helgi

Farþegar sem hyggjast ferðast með Herjólfi föstudaginn 6. mars og fyrri hluta laugardags 7. mars eru hvattir til að fylgjast vel með tilkynningum þar sem aðstæður til siglinga eru ekki hagstæðar. Samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi eru allar ferðir enn á áætlun til og frá Þorlákshöfn. Hins vegar gæti þurft að gera breytingar á áætlun ef […]
Undankeppni Stíls á morgun

Undankeppni hönnunarkeppninnar Stíls fer fram á sviði Leikfélags Vestmannaeyja á morgun, 5. mars, klukkan 17.30. Þema keppninnar í ár er „Á tímum Viktoríu“ og munu þátttakendur sýna hönnun sem sækir innblástur í tískustíl þess tímabils. Aðgangur að viðburðinum er ókeypis og eru allir velkomnir að mæta og fylgjast með Sigurlið undankeppninnar tryggir sér sæti í […]
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi

Loðnuvertíðin er annasamur tími fyrir sjómenn og til að halda orkunni og stemningunni uppi skiptir góð næring og vel skipulagt eldhús máli. Hólmgeir Austfjörð eða Geiri eins og hann er oft kallaður starfar um borð í Heimaey VE 1 og kokkar þegar Jónas er fríi. Hólmgeir þekkir því vel hvað þarf til að halda áhöfninni ánægðri og vel nærðri á miðunum. Geiri hefur […]
Bjargið fær rausnarlega gjöf

Bjargið fékk á dögunum veglega gjöf frá Kvenfélagi Landakirkju þegar félagið afhenti nýtt skynjunartæki sem ætlað er að efla hreyfingu og örva skynjun hjá eldra fólki. Kvenfélagið safnaði fyrir tækinu með það að markmiði að styðja við velferð og lífsgæði. Um er að ræða öflugt hjálpartæki sem mun nýtast vel í daglegu starfi og stuðla […]
Loðnufrysting í fullum gangi

„Loðnuvertíðin hefur gengið vel til þessa,“ segir Eyþór Harðarson útgerðarstjóri Ísfélagsins. „Veðrið hefur verið þannig að veiðar hafa verið stundaðar alla daga og vinnslurnar með stöðugt hráefni til frystingar. Ísfélagsskipin fjögur er búin að landa um 13.500 tonnum samtals þegar þessi frétt fór í loftið. Nú tekur við nokkurra daga pása þar til við hefjum […]
Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur til alþjóðlegra verðlauna

Golfvöllurinn í Eyjum hefur verið tilnefndur til verðlauna á World Golf Awards 2026, sem teljast meðal virtustu alþjóðlegu viðurkenninga í heimi golfíþróttarinnar. Kom þetta fram á heimsíðu Golfklúbbs Vestmannaeyja. Völlurinn fær tilnefningu í tveimur flokkum, annars vegar sem besti golfvöllur Evrópu og hins vegar sem besti golfvöllur Íslands 2026. Tilnefningar eru byggðar á mati fagfólks […]
Þuríður Matthíasdóttir hannar einstakt skart

Þuríður Matthíasdóttir, eða Þura eins og hún er oft kölluð er handverkskona sem hefur lengi haft ástríðu fyrir sköpun og unnið með ýmis konar verkefni í gegnum tíðina. Á síðustu árum hefur silfursmíði orðið sífellt stærri hluti af hennar sköpun, þar sem hún vinnur bæði nýtt efni ásamt því að gefa gömlu silfri nýtt líf í formi persónulegra […]
Vestmannaeyjar í gegnum linsu tímans

Fjórði þáttur sýninganna “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma” verður laugardaginn 28. febrúar kl. 11.00–12.00 í Sagnheimum. Á undan eins og á fyrri sýningum verður sýnt stutt myndbrot og myndir. Nú fjöllum við um togspilið í Klaufinni sem er löngu orðið eitt af kennileitum á Heimaey og strand breska togarans Star of the East í […]
Vestmannaeyjabær leitar að dagforeldrum

Vestmannaeyjabær auglýsti í dag eftir einstaklingum til að sinna daggæslu barna, eða svokölluðum dagforeldrum. Sem stendur er enginn starfandi dagforeldri í Vestmannaeyjum, en fram til þessa hafa flest börn fengið leikskólapláss um eins árs aldur. Nú virðist hins vegar þörf á fleiri úrræðum fyrir yngstu börnin. Í auglýsingunni kemur fram að Vestmannaeyjabær veiti dagforeldrum starfsleyfi […]
Magnús Kjartan ekki með brekkusönginn í ár

Tónlistarmaðurinn Magnús Kjartan Eyjólfsson mun ekki stýra brekkusöngnum í Herjólfsdal á Þjóðhátíð í ár. Magnús hefur stýrt brekkusöngnum síðan 2021 en segir nú tímabært að stíga til hliðar eftir að hafa ekki fundið sömu ástríðu fyrir verkefninu og áður. Magnús greinir frá ákvörð sinni í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann lítur yfir farinn veg […]
Konudagurinn er í dag

Í dag er konudagurinn, en hann er fyrsti dagur mánaðarins góu í gamla norræna tímatalinu, sem er sunnudagurinn í 18. viku vetrar á milli 18. og 25. febrúar. Konudagurinn er rótgróin hefð í íslensku samfélagi. Á þessum degi er góu fagnað, en hún boðar aukna birtu og minnir okkur á að vorið er á næsta […]
Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn

Herjólfur stefnir á að sigla til Landeyjahafnar seinnipartinn í dag eina ferð, föstudaginn 20. febrúar. Áætluð brottför frá Vestmannaeyjum er klukkan 17:00 og brottför frá Landeyjahöfn klukkan 20:15. Farþegar eru beðnir um að fylgjast vel með tilkynningum, þar sem breytingar á áætlun geta orðið með stuttum fyrirvara. Ef gera þarf breytingar verður það tilkynnt um […]
Skvísudagur á Bókasafninu um helgina

Bókasafnið býður upp á skemmtilega dagskrá n.k. laugardag, 21. febrúar þar sem sérstakur skvísudagur verður haldinn í tilefni konudagsins. Dagskráin fer fram í Sagnheimum kl. 13 þar sem rithöfundurinn Ása Marín kemur í heimsókn og fjallar um bækur sínar, segir frá hvað veitir henni innblástur ásamt því að lesa brot úr nýjustu bók sinni, Stjörnurnar […]
Snjóþungur öskudagur

Þrátt fyrir mikla snjókomu í dag létu börnin hvorki kulda né snjó aftra sér og mættu hress og kát til að syngja. Öskudagurinn var því litríkur og skemmtilegur eins og ávallt og iðaði bærinn af lífi þrátt fyrir veður. Krakkarnir sungu fyrir starfsmenn fyrirtækja og fengu sælgæti að launum. Hér má sjá nokkrar myndir frá […]
Gamla myndin

Rauðagerði var reist að hluta til fyrir söfnunarfé er safnaðist í Vestmannaeyjasöfnun Rauða kross Íslands vegna eldgossins á Heimaey 1973. Fyrsta skóflustungan var tekin í mars 1974 en húsnæðið var tekið í notkun í maí 1974. Rauðagerði verður á næstunni rifið og á lóðinni eiga að rísa íbúðarhús. (meira…)
Birgir Nielsen um tónlistina og lífið á skólabekk

Birgir Nielsen hefur starfað við tónlist og kennslu um árabil og er vel þekktur í menningar- og tónlistarlífi Vestmannaeyja. Hann hlaut titilinn bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2024 og kennir nú í Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Samhliða tónlistinni hefur hann á síðari árum stundað nám við FÍV í iðngreinum. Í viðtalinu ræðir Birgir um uppvöxt sinn í tónlistinni, hljómsveitarferilinn, kennsluna, námið á fullorðinsárum og þau fjölmörgu verkefni […]
Valentínusardagurinn er í dag

Valentínusardagurinn er í dag, 14. febrúar. Dagurinn hefur ekki verið mjög áberandi hér á landi en hefur á undanförnum árum orðið sífellt vinsælli. Valentínusardagurinn er tileinkaður ást og vináttu og margir sýna ástvinum sínum hlýju með gjöfum, blómum, kortum eða samveru. Dagurinn á rætur að rekja til heilags Valentínusar, en í dag snýst hann fyrst […]
Búningaskiptimarkaður á bókasafninu

Það styttist í Öskudaginn og eflaust margir krakkar og foreldrar farnir að huga að búningum fyrir daginn. Bókasafn Vestmannaeyja hefur brugðið á það ráð að setja upp skemmtilegan búningaskiptimarkað til að auðvelda undirbúning fyrir daginn. Markaðurinn er hugsaður sem einföld og umhverfisvæn leið fyrir fjölskyldur og einstaklinga til að endurnýta búninga fyrir hátíðina. Hægt er […]
Opnunarhátíð Sea Life um helgina

Þann 14. og 15. febrúar, n.k. verður opnunarhátíð í Sea Life Beluga Whale Sanctuary. Hátíðin stendur frá kl. 11:00 til 16:00 báða dagana. Boðið verður upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir gesti og fjölskyldur. Á milli kl. 13:00 og 15:00 verður opninn markaður þar sem nokkrar verslanir í Eyjum verða með sölubása. Aðgangur verður ókeypis þessa […]
Perlað fyrir Kraft í Höllinni

Félagið Kraftur, sem styður ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra, stendur fyrir perlun armbanda í Höllinni í Vestmannaeyjum laugardaginn nk. frá klukkan 13-16. Viðburðurinn er hluti af árlegri fjáröflunar- og vitundarvakningu félagsins. Að þessu sinni verður perlað nýtt „Lífið er núna“ armband, sem margir þekkja sem tákn um styrk, von og […]